juli 2021
38 L index, ein farsælasta fataverslun landsins, hefur á liðnum árum stutt vel við starf Samhjálpar og fleiri góðgerðarsamtaka. Slíkur stuðningur skiptir umtalsverðu máli í því starfi sem Samhjálp sinnir. Félög á borð við Samhjálp reiða sig mikið á stuðning fyrirtækja og einstaklinga og þar skiptir hver króna máli. Hjónin Albert Þór Eiríksson og Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir eru umboðsaðilar fyrir Lindex á Íslandi og stýra félaginu í dag ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum. Starfsemin hefur vaxið töluvert frá því að hún hófst í bílskúrnum heima hjá þeim árið 2010. Félagið rekur nú sjö verslanir, þrjár á höfuðborgarsvæðinu og fjórar á landsbyggðinni, og stefnt er að því að opna nýja verslun á Selfossi síðla sumars. Við kunnumaðmeta starf Samhjálpar - Eigandi Lindex á Íslandi segir viðskiptavini gera félaginu kleift að styðja við góðmálefni. Albert Þór segir í samtali við Samhjálparblaðið að samhliða þessum vexti hafi þau lagt áherslu á að taka þátt í samfélagslegum verkefnummeð því að styðja vel við ýmis góðgerðarmál. „Það má segja að okkur beri skylda til að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og góðar vörur á góðu verði. Þá höfum við skyldum að gegna gagnvart starfsfólki okkar og að halda vel utan um þá. Samhliða þessu höfum við skyldum að gegna gagnvart samfélaginu í heild sinni,“ segir Albert Þór. „Við lítum þannig á að þetta sé stór hluti af starfi okkar,“ segir hann, en Lindex á Íslandi hefur látið um 100 milljónir króna renna til góðgerðarmála á þeim rúma áratug sem félagið hefur starfað. „Við kunnum að meta starf Samhjálpar, sem gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu,“ segir hann. „Á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að Samhjálp þarf hjálp til að hjálpa öðrum og við höfum leitað leiða til að koma til móts við það, meðal annars með fjárframlögum og veitingum á Kaffistofu Samhjálpar. Við viljum vera til staðar þar sem verið er að vinna gott starf, sem Samhjálp vissulega gerir, og okkur er það bæði ljúft og skylt að styðja við starfsemina.“ Albert Þór tekur þó fram að slíkur stuðningur væri ekki mögulegur nema fyrir viðskiptavini Lindex. „Það er fyrir þeirra tilstuðlan sem við getum stutt við góð málefni,“ segir Albert Þór og segir í léttum dúr að Lindex á Íslandi sé með bestu viðskiptavini í heimi. Samhjálp þakkar Alberti Þór, Lóu Dagbjörtu og starfsfólki Lindex fyrir stuðninginn á liðnum árum. Albert Þór Eiríksson, eigandi Lindex á Íslandi
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=