juli 2021

36 Upplifun hjá Samhjálp varð grunnurinn að bata Þ að eru ekki bara fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem styðja við rekstur og starfsemi Samhjálpar, heldur láta fyrirtæki víðs vegar um landið gott af sér leiða ýmist með fjárframlögum, vörum og þjónustu eða með öðrum leiðum. Eitt þeirra er veitingastaðurinn Hard Wok Cafe á Sauðárkróki. Eigandinn Árni Björn Björnsson segir í samtali við Samhjálparblaðið að hann hafi lengi hrifist af starfi Samhjálpar og því mikilvæga hlutverki sem samtökin gegna í samfélaginu. Sjálfur setti hann tappann í flöskuna fyrir um 20 árum. „Fyrir um 23 árum dró vinur minn mig með sér á samkomu í Samhjálp sem átti eftir að hafa mikil áhrif á mig,“ segir Árni Björn. „Í lok samkomunnar var gestum boðið upp á fyrirbæn og vinur minn hvatti mig til að fara. Ég gerði það, kraup við stól og lokaði augunum og einhver lagði höndina á bakið á mér og bað fyrir mér. Það má segja að ég hafi orðið fyrir andlegri upplifun, jafnvel þó svo að ég hafi ekki verið kirkjurækinn maður.“ Nokkrum árum síðar sótti Árni Björn sér aðstoð, hóf að sækja tólf spora fundi og hætti sjálfur að drekka. „Það má segja að þetta hafi lagt grunninn að batanum sem síðar kom,“ segir Árni Björn. Hann segir jafnframt að hann hafi séð mikinn árangur af starfi Samhjálpar í gegnum tíðina. Hann rak um tíma pizzustað við Hlemm í Reykjavík og þangað komu margir í misjöfnu ástandi. Margir þeirra áttu þó eftir að ná tökum á lífi sínu með aðstoð Samhjálpar og Árni Björn varð vitni að þeirri þróun. Hann hefur nú rekið Hard Wok Cafe á Sauðárkróki í um tíu ár. Á þeim tíma hefur hann jafnframt látið fé af hendi rakna og tekið þátt í ýmsum samfélagsverkefnum í heimabyggð. „Hér lifir fjölskyldan hamingjusömu lífi, heimamenn láta mér líða eins og Skagfirðingi,“ segir Árni Björn. „Það er því mikilvægt að geta tekið þátt í því góða samfélagi sem hér er og það er almennt mín skoðun að fyrirtækjaeigendur eigi að gera það sem þeir geta til að láta gott af sér leiða. Það versta sem maður getur gert er að vera eigingjarn og ég finn það sjálfur hvað það gefur mikið að hjálpa öðrum.“ Árni Björn segir í léttum tón í lokin, sem rekstrarmaður veitingahúss, að mögulega sé besta uppskriftin sú að hjálpa öðrum. Árni Björn Björnsson, eigandi Hard Wok Café á Sauðárkróki

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=