juli 2021

34 Hugleiðing umhegðun HÖFUNDUR: TRYGGVI MAGNÚSSON Mig langar að tala svolítið um hegðun okkar mannfólksins og hvort geti verið þörf á breytingum í sumum tilfellum. Mér stendur kannski næst að ræða hegðunarmynstur sem fylgir fíknisjúkdómum. Þeir sem hafa verið í neyslu og náð bata til lengri eða skemmri tíma kannast vonandi við að hegðun er önnur þegar ekki er verið að brúka hugbreytandi efni. Það er engin leið fyrir mig að segja hvað er viðeigandi hegðun og hvað ekki, því við höfum eins margar skoðanir og við erummörg. Þó hafa flestir sem hafa glímt við fíknivanda þá sögu að segja að hegðun þeirra hefur oft komið þeim í vandræði. Það vill segja að eitthvað hefur farið úrskeiðis. Nú er ekki einfalt að segja hvað hefur yfirhöfuð áhrif á hegðun okkar og framkomu en við erum sífellt að skoða þau mál með opnum huga. Það er svo ótalmargt sem getur spilað þar inn í, margt eru hlutir sem við getum ekki tekið ábyrgð á – við höfum verið beitt ofbeldi, lent í einelti, misst einhvern nákominn og svo mætti lengi telja. Svo er líka margt sem við getum haft með að gera, hvernig við tölum við og um aðra, hvað við gerum almennt í lífinu okkar og svo mætti lengi telja. Þarf breyttahegðun til aðnábata? Það er nauðsynlegt að breyta lífi sínu á margan hátt og marga bresti þarf að laga og virkja. Þannig má nefna jákvæðni og umburðarlyndi, að koma auga á styrkleika sína. Allt er þetta nauðsynlegt. Það er stundum dálítið erfitt, kostar átök og tekst ekki alltaf í fyrstu atrennu en ég er viss um að öllum getur tekist þetta. Það getur verið svo margt sem við burðumst með sem okkur finnst nánast óyfirstíganlegt. Aðalatriðið er að gera sitt besta. Höfumviðverkfæri til að hegðaokkur þannigað lífiðverði betra? Nú á tímum eru sem betur fer ýmsar og fjölbreyttar leiðir í boði til stuðnings. Þá skiptir miklu máli að gera sitt besta og grípa allt sem að gagni getur komið. Ég kann ekki að segja frá öllum bjargráðum sem til eru en hef þó fengið oft á tíðum að sjá fallegan árangur hjá þeim sem hafa lagt sig vel fram. Oft þarf mikla seiglu til að ná árangri, sem og miklar og endurteknar verklegar æfingar. Svo má ekki gleyma því að vilji til breytinga þarf að vera til staðar. Viltu skoðaþettameð opnumhuga? Það er ekki hægt að þvinga neinn til breytinga. En ég er viss um að margir þrá bata og betra líf og þá er þetta kannski umhugsunarvert. Það geta margir vitnað um að ný hegðun getur verið lífsbjörg. Margar fallegar reynslusögur eru til þar um. Munum að við erum öll manneskjur með tilverurétt, hvar sem við erum stödd í lífinu. Verum eins góð hvert við annað og við getum. Höfundur er umsjónarmaður stuðningsheimila Samhjálpar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=