juli 2021
32 Vinkona Samhjálpar kvödd MINNINGARORÐ Sædís Hafsteinsdóttir, 1965-2021. S ædís Hafsteinsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 11. september 1965. Hún lést umkringd ástvinum á Landspítalanum í Fossvogi 25. júní 2021. Sædís ólst upp í Vestmannaeyjum og flutti síðar til Reykjavíkur. Hún sagði sögu sína í viðtali í jólaútgáfu Samhjálparblaðsins 2018, en hún var þá orðinn starfsmaður á Kaffistofu Samhjálpar. „Lífið snýst mikið um að sinna börnum mínum og barnabörnum í dag. Ég er góð amma, þó ég segi sjálf frá,“ sagði Sædís í léttum tón í fyrrnefndu viðtali. „Það eru forréttindi að fá að starfa hjá Samhjálp, samtökunum sem björguðu lífi mínu, og fá að gefa til baka með þeim hætti. Ég er rosalega ánægð að vera hér, en fyrst og fremst þakklát,“ sagði hún einnig. Sem fyrr segir starfaði Sædís um árabil á Kaffistofu Samhjálpar og stóð sig þar með mikilli prýði. Hún var dugnaðarforkur og ósérhlífin til vinnu. Sædís setti mark sitt á starfsemi Kaffistofunnar og var vel liðin bæði af gestum og starfsfólki. Samhjálp sendir fjölskyldu Sædísar innilegar samúðarkveðjur.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=