Samhjalp des2021

22 Ríkið styður við tilraunaverkefni umáfallameðferð Valdimar Þór Svavarsson, framkvæmdastjóri Samhjálpar, Ásmundur Einar Daðason, sem þar til nýlega var félags- og barnamálaráðherra, og Kristín Pálsdóttir, talskona og framkvæmdastjóri Rótarinnar. Félagsmálaráðuneytið gerði í lok sumars samning við Hlaðgerðarkot og Rótina vegna tilraunaverkefnis um áfallameðferð. Eins og fjallað hefur verið um hér á síðum Samhjálparblaðsins hafa Hlaðgerðarkot og Rótin haldið þrjú gagnreynd, áfalla- og kynjamiðuð námskeið í Hlaðgerðarkoti, tvö fyrir konur og eitt fyrir karla. Samningurinn gerir Rótinni og Hlaðgerðarkoti mögulegt að þróa námskeið vegna áfallameðferðar enn frekar og halda fleiri námskeið fyrir bæði karla og konur, ásamt því að þýða efni sem þeim tengist. Námskeiðin eru ný hugsun þegar kemur að meðferð einstaklinga eftir áföll og miðast að því að hjálpa og auðvelda einstaklingum að vinna úr áföllum. Niðurstöður þjónustu- kannana sem gerðar hafa verið á þeim verkefnum sem hafa þegar verið haldin bera vitni um góðan árangur og ánægju meðal þátttakenda. Ásamt því að lýsa yfir ánægju með námskeiðin hafa þátttakendur lýst því að efni námskeiðanna gagnist þeim á áframhaldandi batagöngu. Ásmundur Einar Daðason, sem var félags- og barnamálaráðherra þegar samningurinn var gerður, sagði við undirritun samningsins að mikilvægt væri að til staðar væru úrræði þar sem fólk fengi fræðslu og hjálp við það að vinna úr áföllunum. „Það er gleðilegt að geta stutt við þetta mikilvæga starf,“ sagði Ásmundur Einar. Valdimar Þór Svavarsson, framkvæmda- stjóri Samhjálpar, segir að mikil tengsl séu á milli áfalla í æsku og fíknivanda síðar á lífsleiðinni. Með samstarfi við Rótina sé unnið markvisst að því að greina og takast á við þau áföll til að auka líkur á langtímaárangri þeirra sem komi til meðferðar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=