Samhjalp des2021

21 ómeðvitaðir um hvaða tilfinningar brjótast um í brjósti þeirra hverju sinni, hvaða áhrif viðkomandi tilfinningar hafa og hvernig er best að bregðast við þeim. Með mælingum og hnitmiðuðum aðgerðum verða til leiðir til að kenna einstaklingum tilfinningastjórnun og efla vitund um hvaða tilfinningar eru við stjórn hverju sinni, af hverju þær eru til staðar og ekki síst hvernig hægt er að vinna með ákveðnar tilfinningar. Allir skjólstæðingar í Hlaðgerðarkoti fá nú kynningu á tilfinningaskalanum strax við komu í meðferðina. Þannig fá skjólstæðingar fræðslu frá upphafi meðferðar um það hvernig hægt er að læra að skilgreina innri tilfinningar, læra nöfn tilfinninga og gera áætlanir um viðbrögð við þessum tilfinningum. Takmarkið er að einstaklingar búi við lok meðferðar við þá þekkingu sem gerir tilfinningastjórnun þeirra að eðlilegum hlut í tilverunni. Þannig hafa einstaklingar ný verkfæri til að staldra við, skilgreina tilfinningu og líðan og taka upplýsta – og vonandi rétta – ákvörðun í framhaldinu. Verkefni þetta telst til nýsköpunar á sviði meðferðar við áfengis- og vímuefnaröskun. Það er mat Samhjálpar að með innleiðingu þessa aukist líkur á því að einstaklingar nái að takast á við þann vanda sem oft er grunnur að vímuefnaneyslu þeirra og ástæðu þess að einstaklingur nær ekki að viðhalda lífi án vímuefna. Það er trú okkar að þetta gæti veitt einstaklingum dýrmætt verkfæri í að viðhalda edrúmennsku, skapa sér líf án vímuefna og auka lífsgæði sín. Héðinn Unnsteinsson, formaður Styrktarsjóðs geðheilbrigðis, og Helga Lind. Í umsögn fagráðs kom fram að það væri mat ráðsins að verkefnið væri valdeflandi fyrir notendur og aðstandendur og mikilvægt fyrir jaðarsettan hóp sem glímir við tvíþættan vanda. Styrktarþegar úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis 2021. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálummeð því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði íbúa og skilning þar á. Helga Lind veitir styrknum móttöku í Iðnó. Þetta var fyrsta úthlutun sjóðsins en alls bárust 54 umsóknir. Samtals voru veittar tíu milljónir króna í styrki þann dag til fjölbreytta verkefna.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=