Samhjalp des2021

20 Styrktarsjóður geð­ heilbrigðis styrkir Samhjálp Verkefnið Tilfinningaskalinn er nýsköpun á sviði meðferðar við vímuefnaröskunar S amhjálp veitti um miðjan október móttöku 480 þúsund króna styrk frá Styrktarsjóði geðheilbrigðis. Styrknum er ætlað að styðja við verkefni á vegum Samhjálpar undir heitinu Tilfinningaskalinn (e. Mood meter) fyrir einstaklinga í langtíma áfengis- og vímuefnameðferð. Tilfinningaskalanum er ætlað að valdefla einstaklinga sem fara í gegnum langtíma áfengis- og vímuefnameðferð og er hann hugsaður til að auka á langtíma bjargir og verkfæri til sjálfsvinnu einstaklinga eftir að meðferð lýkur og batavegferð hefst. Tilgangur verkefnisins er að efla getu einstaklinga til sjálfsþekkingar og tilfinningastjórnunar. Höfundur tilfinningaskalans er dr. Marc Brackett við læknadeild Yale-háskóla. Brackett hefur birt fjölda rannsókna sem vitna um gagnsemi vinnu með tilfinningaskalann, bæði fyrir börn og fullorðna. Tilgangur skalans er að einstaklingar geti gert sér grein fyrir hvaða og hvers konar tilfinningar bærast innra með þeim á hverjum tíma og hvaða áhrif tilfinningin hefur á ákvarðanir og hegðun. Tilfinningaskalinn setur fram tillögur um hvernig viðkomandi getur leitast við að komast út úr tilfinningunni og vinna með líðanina ef hún er óþægileg. Tilfinningaskalinn setur fram tillögur að björgum fyrir einstaklinga og leggur grunninn að áætlun til sjálfsbjargar sem hægt er að útfæra nánar fyrir hvern og einn. Reynslan sýnir að einstaklingar sem koma til áfengis- og vímuefnameðferðar í Hlaðgerðarkoti eru illa staddir og oft langt leiddir inn í heim fíkniröskunar. Eftir langvarandi neyslu og félagslega erfiðleika, jafnvel allt frá frumbernsku, hafa einstaklingar bælt tilfinningar og eru þannig Þau Helga Lind Pálsdóttir, forstöðumaður Hlaðgerðarkots, og Sigurður Smári Fossdal, dagskrárstjóri Hlaðgerðarkots, tóku á móti styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis. Jóginn skynjar sjálfan sig í sálu hverrar veru og allar verur í sálu sinni - Bhagavad Gita Skipholt 50 C www.jogasetrid.is

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=