Samhjalp des2021

18 Langur biðlisti Spurð hvort raunhæft sé að gera þá kröfu til einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref í bataferli segir hún að svo sé. Markmiðið sé að skapa góða menningu og öruggt skjól þar sem íbúar hafi ekki einungis stuðning af starfsfólki Samhjálpar heldur einnig hver af öðrum. „Það er töluverð aðsókn í að komast á Brú og við höfum séð biðlistann lengjast,“ segir Helga Lind. „Það eitt og sér er ekki ánægjuefni en þó Ásamt þeirri vinnu semer að baki í meðferð og í bataferlinu á Brú gerir það íbúumkleift að komast aftur út í samfélagið og hafa hlutverki að gegna. Það er það semallir vilja og við viljum skila fólki aftur út í samfélagið semgildum samfélagsþegnum. “ Það er ekki bara starfsemi Brúar sem hefur tekið breytingum heldur var einni íbúð í húsinu nýlega breytt í setustofu eða félagsmiðstöð, þar sem íbúum gefst færi á að hittast á morgunfundum og verja tíma saman þess utan. Slíkur samverustaður er mikilvægur fyrir þá einstaklinga sem eru að stíga fyrstu skrefin út í samfélagið á ný eftir oft löng og erfið neyslutímabil. til merkis um að fólk kunni að meta góða skipulagningu og stífari ramma utan um það góða starf sem við teljum að sé unnið á Brú. Aftur á móti er það svo að einstaklingar geta misstigið sig og við erum til staðar fyrir þá einstaklinga. Í einhverjum tilvikum snýr fólk aftur upp á Hlaðgerðarkot til skemmri eða lengri tíma eða fer í önnur úrræði sem standa til boða.“ Aftur út í samfélagið Allir virkir dagar byrja með morgunfundi með umsjónarmönnum þar sem farið er yfir verkefni dagsins. Íbúum á Brú er ætlað að sækja þá fundi. Þegar einstaklingar eru komnir í virkni, vinnu eða nám minnkar krafan sem gerð er um mætingu á morgunfundi. Einu sinni í viku eru síðdegishúsfundir fyrir þá sem ekki komast á morgunfundi. Einu sinni í viku er haldinn AA-fundur á Brú sem ætlaður er fyrir íbúa þar sem markmiðið er meðal annars að efla félaga- og jafningjastuðning. Umsjónarmenn eru þar að auki til stuðnings við íbúa ef á þarf að halda. „Að komast í nám eða vinnu er stór hluti af endurhæfingu einstaklinga sem eru í bataferli,“ segir Helga Lind. „Ásamt þeirri vinnu sem er að baki í meðferð og í bataferlinu á Brú gerir það íbúum kleift að komast aftur út í samfélagið og hafa hlutverki að gegna. Það er það sem allir vilja og við viljum skila fólki aftur út í samfélagið sem gildum samfélagsþegnum.“ Guðjón Þór, borehf@borehf.is Fyrirtækið Bor ehf starfar við steypusögun og kjarnaborun og hefur verið starfrækt síðan 1998 á sömu kennitölunni og er þar af leiðandi komið með viðamikla reynslu á þessu sviði. Óskar þú frekari upplýsinga eða tilboðs er ég ávallt til þjónustu reiðubúinn Sími: 895 9490

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=