Samhjalp des2021
17 Helga Lind Pálsdóttir, forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti, hefur einnig yfirumsjón með starfsemi Brúar en umsjónarmenn Brúar eru þau Tinna Aðalbjörnsdóttir og Andri Már Ágústsson. „Í þeim tilvikum þar sem einstaklingar hafa lokið meðferð í Hlaðgerðarkoti og ákveða að fara á Brú í framhaldinu verður Brú hluti af því meðferðarúrræði sem Samhjálp veitir einstaklingnum, enda leggjum við mikið upp úr samfellu í þjónustu. Aftur á móti eru líka íbúar á Brú sem lokið hafa meðferð annars staðar eða eru þannig staddir í lífinu að þeir þurfa á þessu úrræði að halda,“ segir hún. Helga Lind segir að hver sem er geti sótt um búsetu á Brú og farið sé vandlega yfir hverja umsókn. Um það gildi þó strangar reglur og fastmótað ferli. Þannig þurfi einstaklingar að vera með virka endurhæfingar- og virkniáætlun og í tengingu við önnur úrræði sem standa til boða innan velferðarkerfisins. Mikið er því um samvinnu milli Samhjálpar og annarra stofnana innan velferðarkerfisins. „Við gerum þá kröfu að íbúar á Brú séu edrú og fylgi þeirri áætlun sem sett er upp,“ segir Helga Lind.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=