Samhjalp des2021
16 Framfarir í starfinu á Brú Breyttir verkferlar og strangari kröfur eru þegar að bera árangur. T öluverðar breytingar hafa verið gerðar á starfsemi og rekstri áfangaheimilisins Brúar, sem Samhjálp hefur rekið um árabil. Lesendum til glöggvunar er rétt að rifja upp að áfangaheimili eru úrræði sem stendur þeim til boða sem eru í bataferli eftir að hafa lokið áfengis- og vímuefnameðferð. Það er því algengt að þeir skjólstæðingar sem lokið hafa meðferð í Hlaðgerðarkoti á vegum Samhjálpar fari í framhaldinu inn á áfangaheimili þar sem bataferli þeirra heldur áfram. Tilgangur og markmið áfangaheimilisins Brúar er þannig að vera eftirmeðferðar- og stuðningsúrræði fyrir þá einstaklinga sem hafa verið í neyslu vímuefna, hafa farið í gegnum langtímameðferð eða eru að vinna að áframhaldandi edrúmennsku og þarfnast frekari stuðnings. Í því breytingaferli sem hefur átt sér stað á árinu voru innleiddar nýjar húsreglur sem gera strangari kröfur til íbúa en áður voru. Á áfangaheimilinu Brú er íbúum veitt gott aðhald, stuðningur og aðstoð til sjálfshjálpar. Markmiðið er að skapa og viðhalda menningu sem byggir á edrúmennsku, heiðarleika, hjálpsemi og virðingu. Unnið er markvisst að því, í samstarfi við félagsmálayfirvöld, að hjálpa einstaklingum að ná tengslum við fjölskyldu þegar svo ber undir, hefja nám, snúa aftur út á vinnumarkaðinn o.s.frv. Í dag eru 18 íbúðir á Brú. Í maí 2021 var rekstrarformi heimilisins jafnframt breytt. Samhjálp leigir húsnæðið nú af Félagsbústöðum og endurleigir til íbúa. Þessi breyting hefur það í för með sér að ólíkt því sem áður var getur Samhjálp nú þjónustað einstaklinga sem ekki eiga lögheimili í Reykjavík, en áður var búseta á Brú bundin því skilyrði að eiga lögheimili í Reykjavík. Áfangaheimilið Brú er ætlað þeim sem hefa vilja og sýna getu til að nýta sér vímuefnalaust úrræði til að búa sig enn frekar undir að búa sjálfstætt á almennum markaði og vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Miðað er við að einstaklingar geti dvalið á áfangaheimilinu og nýtt sér stuðningsúrræði í eitt til tvö ár. Krafa um edrúmennsku Helga Lind Pálsdóttir, forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti, hefur einnig umsjón með starfsemi Brúar. Aðrir umsjónarmenn, sem eru í daglegum samskiptum við íbúa, eru Andri Már Ágústsson og Tinna Aðalbjörnsdóttir (sem ræðir sögu sína ítarlega í viðtali hér framar í blaðinu). Helga Lind segir í samtali við Samhjálparblaðið að breytt fyrirkomulag feli í sér að Brú sé nú ekki eingöngu áfangaheimili og búsetuúrræði. „Það má segja að Brú sé í staðinn meira stuðningsheimili fyrir fólk í bata,“ segir Helga Lind. Hún bætir við að umtalsverð vinna liggi að baki breyttu og bættu fyrirkomulagi á Brú, meðal annars vinnu félagsráðgjafa sem þekki vel til málaflokksins, og að árangurinn sé nú þegar áþreifanlegur.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=