Samhjalp des2021
15 fært fram hugarró og von um að komandi jólahátíðir verði fjölskyldan sameinuð á ný. Skjól í Hlaðgerðarkoti Það kann að hljóma einmanalegt að dvelja á meðferðarheimili yfir jólahátíðina en raunin er þó sú að Hlaðgerðarkot er skjól fyrir marga yfir hátíðina. Margir þeirra sem koma til meðferðar í Hlaðgerðarkot eru langt leiddir í alkóhólisma og fíknivanda, sumir eiga ekki í örugg hús að venda og jólaboð með fjölskyldu er fjarlægur draumur vegna sársauka og sárinda í kjölfar neyslunnar. Við í Hlaðgerðarkoti leggjum mikið upp úr því að jólahátíðin sé jákvæð, gleðileg og hátíðleg upplifun fyrir heimilismenn. Á aðventunni fara jólaljósin upp, jólatré og jólaskraut, smákökur eru bakaðar, kokkarnir útbúa jólahlaðborð fyrir heimilismenn og dagskráin er löguð að jólunum með leikjum og gleði. Á aðfangadag er hátíðarmatur og allir heimilismenn fá jólagjafir. Síðustu jól notuðum við okkur Covid-ástandið og gátum boðið upp á jólatónleika með vinsælum tónlistarmanni inni í stofu í Hlaðgerðarkoti. Von okkar og markmið er að þeir sem eru í Hlaðgerðarkoti yfir jólahátíðina fái nýja og jákvæða upplifun af jólunum. En þrátt fyrir allt þetta getur verið, og meira að segja er það líklegt, að einstaklingur sem dvelur í Hlaðgerðarkoti yfir jólahátíðina upplifi bæði einmanaleika og sorg. Vitundin um að vera ekki með fjölskyldu og vinum getur valdið sorg sem þarf að vinna úr. Reynslan sýnir okkur að það að vera með öðrum sem eru að ganga í gegnum það sama getur verið styrkur, jafningjastuðningurinn og skilningurinn verður þannig ómetanlegur þáttur í að upplifa jólin á nýjan hátt. Ný saga skrifuð Að vera í áfengis- og fíknimeðferð yfir jólahátíðina getur verið fyrsti kaflinn í nýrri sögu, batasögu einstaklingsins. Í meðferðinni hefur einstaklingurinn tækifæri til að horfa til þess sem liðið er og vinna með sársauka fortíðarinnar. Einstaklingurinn fær aðstoð við úrvinnslu tilfinninga og stuðning við að tileinka sér nýjan hugsunarhátt. Hann öðlast nýja þekkingu og verkfæri til að leggja grunninn að nýjum lífsháttum án vímuefna. Jólin snerta ákveðinn hjartastreng í lífi allra. Reynsla og minningar hvers og eins ráða því svo hvort það er á jákvæðan eða neikvæðan hátt. Það kann að reynast erfitt fyrir einstakling að velja það að vera í meðferð á aðventunni og um jól. Fjarri þeim hefðum og siðum sem hann þekkir, hvort sem þær eru gleðilegar eða litaðar af erfiðleikum og fíknivanda. Ávinningur af því að dvelja í meðferð þessi jólin veitir tækifæri til að búa til nýjar jólahefðir fyrir sig og ástvini sína. Það koma alltaf jól eftir þessi jól, en líf án vímuefna í lífi þess sem glímir við alkóhólisma og fíknivanda er loforð um að jólahátíðir framtíðarinnar verði ánægjulegri og betri fyrir alla. Helga Lind Pálsdóttir, félagsráðgjafi MA forstöðumaður Hlaðgerðarkots og meðferðar hjá Samhjálp. Í Hlaðgerðarkoti leggjum við mikið upp úr því að jólahátíðin sé jákvæð, gleðileg og hátíðleg upplifun fyrir heimilismenn. Á aðventunni fara jólaljósin upp, jólatré og jólaskraut, smákökur eru bakaðar, kokkarnir útbúa jólahlaðborð fyrir heimilismenn og dagskráin er löguð að jólunum með leikjum og gleði. Á aðfangadag er hátíðarmatur og allir heimilismenn fá jólagjafir.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=