Samhjalp des2021

14 Jólahátíðin í Hlaðgerðarkoti A ðventan er tími fyrirheita, væntinga og vonar. Tími þegar jólaljósin kvikna og færa aukna birtu inn í skugga skammdegisins. Jólahátíðin sjálf er í hugum flestra hátíð og bókalesturinn. Afleiðingar alkóhólisma og fíknivanda eru svo sannarlega ekki meðal þess sem fólk telur til jólahefða, en raunin er sú að margar fjölskyldur á Íslandi takast á við sorgina sem fíkninni fylgir líka um jól. Fíknin þekkir ekki árstíðir Að vera í áfengis- og vímuefnameðferð yfir jólahátíðina þar sem gamlar jólahefðir og -venjur víkja fyrir nýjum aðstæðum og fólki á meðferðarheimili getur verið óhugsandi fyrir marga. Fíknin þekkir hins vegar engar árstíðir, hún fer ekki í jólafrí heldur getur jólahátíðin verið þeim sem glímir við fíkn og aðstandendum hans kvíðvænlegur tími. Börn sem eiga foreldra með fíknivanda kvíða afleiðingum neyslunnar þessi jólin og foreldrar sem eiga börn með fíknivanda óttast að barnið lifi kannski ekki af neysluna um hátíðina. Jólaboðin og jólahlaðborðin þar sem boðið er upp á áfengi geta auðveldlega breytt því sem er ætlað að vera notaleg samvera í átök innan fjölskyldunnar og væntingarnar um gleðilega jólahátíð eru brostnar, jafnvel ekki í fyrsta skiptið. Aðventan, jólin og áramótin eru alkóhólistum og þeim sem eiga við fíknivanda að stríða oft erfiður tími. Margir sem koma til meðferðar í Hlaðgerðarkoti eiga fleiri slæmar minningar en góðar um jólahátíðina allt frá barnæsku. Í könnun sem gerð var í Hlaðgerðarkot á árinu sem er að líða, þar sem skoðuð voru tengsl á milli erfiðrar reynslu og áfalla í æsku við fíknivanda, kom fram að 60–80% þeirra sem komu til meðferðar höfðu átt foreldra með fíknivanda, voru alkóhólistar og/eða glímdu við annan geðrænan vanda. 78%–82% höfðu orðið fyrir tilfinningalegu ofbeldi og um 60% orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á heimili sínu í æsku. Var jólahátíðin í raun hátíð ljós og friðar í lífi margra þeirra sem glíma við fíknivanda? Eða var hátíðin sem átti að vera hátíð gleði og samveru aðeins hátíð brostinna væntinga og vona? Minningar um jólahátíðina geta verið hlaðnar sársauka og margir í þeirri stöðu upplifa meiri kvíða og vanlíðan í desember og óska þess helst að hátíðinni ljúki sem fyrst. Aðstandendur þeirra sem eiga við fíknivanda að stríða ganga einnig í gegnum erfiðan tíma um jólahátíðina. Vitneskjan um ástvin sem enn er í neyslu, óttinn við það versta og sorgin yfir fjarveru ástvinar. Jólavonin um gleðilegar samverustundir verður ekki að veruleika í þetta skiptið, frekar en undangengin jól. Að vita af ástvini sínum í áfengis- og vímuefnameðferð yfir jólahátíðina getur vakið blendnar tilfinningar þrátt fyrir að það taki vissulega óvissu og ótta í burtu. Það getur þó einnig ljóss og friðar, hátíð þar sem fjölskyldan kemur saman og náungakærleikurinn ræður ríkjum. Jólahátíðin einkennist af venjum og hefðum sem mörgum þykja ómissandi svo sem jólamessan, fjölskylduboðin, jólamaturinn, kertaljósin, spilin

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=