Samhjalp des2021

13 Það er afar mikilvægt fyrir þessa einstaklinga að eiga skjól í Kaffistofu Samhjálpar og við erum öll mjög þakklát fyrir það mikilvæga starf semþar er unnið. “ rekstur kaffistofu Samhjálpar. Þetta samstarf hefur gagnast báðum aðilum en þó helst þeim sem hafa þurft á þjónustunni að halda. „Samstarf Reykjavíkurborgar og Samhjálpar einkennist af trausti og virðingu, sem er undirstaða þess að hægt sé að vinna vel saman,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. „Það er jafnframt mikilvægt að þau félagasamtök sem Reykjavíkurborg gerir samninga við vinni að sömu markmiðum og gert er á vettvangi borgarinnar. Til dæmis má nefna stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Hún byggir á skaðaminnkandi nálgun og leiðarljós hennar er að fólki sé sýnd virðing og áhersla sé á valdeflingu notandans, auk þess að unnið er gegn fordómum í samfélaginu. Samhjálp starfar eftir sama leiðarljósi.“ 200máltíðir á dag Kaffistofa Samhjálpar er opin allan ársins hring og afgreiðir daglega um 200 máltíðir til gesta sinna. Þá sinnir Kaffistofan mikilvægu hlutverki í félagsstarfi þeirra sem þangað leita. Þegar talinu víkur að Kaffistofu Samhjálpar segir Regína að margir af þeim sem þangað leiti eigi aðra snertifleti við velferðarsvið borgarinnar, til dæmis gestir neyðarskýlanna og fólk af erlendum uppruna. „Það er afar mikilvægt fyrir þessa einstaklinga að eiga skjól í Kaffistofu Samhjálpar og við erum öll mjög þakklát fyrir það mikilvæga starf sem þar er unnið,“ segir Regína, en á undanförnum árum hefur þjónusta Reykjavíkurborgar við heimilislaust fólk verið aukin til muna. „Þar getur fólk ekki einungis fengið heitan mat og skjól heldur er því mætt af virðingu, sem er afar mikilvægt. Við vitum að starfsfólk Samhjálpar er vakandi fyrir stöðu fólks og bendir okkur á hvað megi betur fara í þjónustunni og hvernig megi bæta hana enn frekar. Þannig aðstoðar það starfsfólk borgarinnar við að kortleggja stöðuna í málaflokknum.“ Þá segir Regína að mikilvægt sé að hafa í huga að mörgum einstaklingum þyki auðveldara að leita til félagasamtaka en opinberra stofnana, sem geri starf Samhjálpar ekki síður mikilvægt. Mikilvægt félagslegt net Regína segir að í kjölfar kórónuveirufaraldursins hafi fleiri einstaklingar leitað eftir fjárhagsaðstoð. Því séu vísbendingar um að fátækt sé vaxandi vandamál meðal ákveðinna hópa. „Þau sem þurfa að reiða sig á fjárhagsaðstoð eru líklegri til að lenda í fátækt eftir því sem tíminn lengist í þeirri stöðu,“ segir Regína. „Á velferðarsviði reynum við að aðstoða fólk við að vinna sig út úr þessari stöðu og vinnum meðal annars eftir aðgerðaáætlun stýrihóps til að sporna gegn sárafátækt barna og barnafjölskyldna. Við höfum lagt áherslu á að veita fjölskyldum sem þurfa að reiða sig á fjárhagsaðstoð aukinn stuðning, t.d. með niðurgreiðslu leikskóla, frístundaheimila og daggæslu. Þetta er eitt það mikilvægasta sem við höfum gert á síðustu árum til að styðja við þennan hóp. Auk þess veitum við ýmiss konar stuðning til virkni og atvinnuþátttöku, s.s. verkefnin Kvennasmiðju, Grettistak og Tinnu, til að fólk geti öðlast aðrar bjargir en fjárhagsaðstoð. Það er svo mikilvægt að fólk sem hefur vinnufærni geti fundið störf við hæfi og þannig unnið sig út úr aðstæðunum.“ Þá nefnir hún að meðal helstu áskorana samtímans séu líka einmanaleiki, skortur á tengslaneti og skortur á fyrirmyndum og því sé mikilvægt að félagasamtök eins og Samhjálp séu til staðar og vinni í að skapa félagsleg tengslanet og persónuleg sambönd. Fleiri dæmi megi finna um að frjáls félagasamtök veiti mikilvæga félagslega aðstoð á sveigjanlegan og einstaklingsbundinn hátt. „Slík samtök geta oft betur en opinberar stofnanir nýtt og byggt upp félagsleg tengslanet og boðið fram lausnir sem eru sniðnar að þörfum hvers og eins,“ segir Regína. „Verkefni á vegum frjálsra félagasamtaka, með neti sjálfboðaliða, geta brúað bilið á milli félagsþjónustu og notenda. Við eigum að nýta og þakka fyrir frumkvæði fólks á þessu sviði og vinna saman.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=