Samhjalp des2021

11 Stóri lærdómurinn er þó sá að það gerir þetta enginn fyrir mann, maður þarf að leggja mikið á sig sjálfur en það er vel þess virði. “ enginn fyrir mann, maður þarf að leggja mikið á sig sjálfur en það er vel þess virði. Þetta kostar vinnu og sjálfsaga, en um leið auðmýkt til að takast á við áföll. Ég ætla þó ekki að eyða lífinu í sjálfsvorkunn, því ég elska öll tímabil lífs míns. Ég er mjög lífsreynd og það er fátt sem slær mig út af laginu. Ég næ að halda ró í fjölbreyttum aðstæðum, sem venjulegt fólk nær ekki endilega að höndla.“ Ný byrjun Eins og fram kom í upphafi hefur þessi saga ánægjulegan endi. Tinna er í dag annar umsjónarmanna á áfangaheimilinu Brú, sem rekið er af Samhjálp, og hefur þess utan einnig tekið að sér verkefni í kvikmyndageiranum á ný. Hún hafði meðal annars umsjón með búningum á setti í Ófærð sem nú er sýnd á Ríkissjónvarpinu, í Kötlu sem sýnd var á Netflix fyrr á árinu sem og öðrum sambærilegum verkefnum. „Það var magnað að fá að koma og vera bara ég,“ segir Tinna. „Ég hef gaman af þessu og veit að ég geri þetta vel. Í stað þess að detta í það að verkefninu loknu verðlauna ég mig með því að bjóða syni mínum út að borða.“ Hvernig gengur að koma undir sig fótunum á ný fjárhagslega eftir svona ferli? „Maður þarf að lifa af því sem maður hefur,“ svarar Tinna að bragði. „Ef maður er hamingjusamur með sjálfum sér þarf maður ekki meira. Vissulega hefur það stundum verið erfitt en ég læt það ganga. Hamingjan í dag felst ekki í efnislegum hlutum heldur í því að eiga eigin hamingju. Ég veit að því meira sem ég legg á mig til að lækna sjálfa mig, því fyrr fæ ég að lifa eðlilegra lífi. Ég þurfti þrjú ár til að vinna með sjálfa mig en svo kemur hitt. Með skipulagningu og aga tekst þetta.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=