Samhjalp mars 2019

9 mig. Þvert á móti trúi ég því í dag að vegna trúarinnar hafi ég orðið edrú. Þarna var ég mjög einbeittur á það að gera allt það sem fyrir mig væri lagt í meðferðinni. Hugarfarið var breytt um leið og ég stimplaði mig inn. Ég var ákveðinn í því að láta reyna á það að verða edrú og leggja allt annað til hliðar.“ Spurður um það af hverju þessi tiltekna meðferð skilaði árangri ólíkt fyrri meðferðum segir Hilmar að fyrri meðferðir hafi skilað bata í skamman tíma, hann hafi komið ferskur út úr þeim, en aldrei náð að höndla lífið almennilega þar sem ekki hafi verið tekið á rótum vandans. „Ég get orðað þetta svo að ég hafi líka átt við edrú vandamál að stríða,“ segir Hilmar til nánari útskýringa. „Eins og ég nefndi áður þá leið mér ekki vel þegar ég var edrú og leið alltaf betur í vímu. Þegar ég var orðinn edrú og fínn þá fannst mér það ekki spennandi ástand, mér leið illa andlega, var þungur á mér og taldi hið hefðbundna fjölskyldulíf ekki henta mér. „Ég tel ekki að maður þurfi að skilgreina sig eða kynna sig af fortíð sinni. Ég lít þannig á að ég hafi náð fullum bata, og þessi löngun hefur verið tekin frá mér. Ég er vissulega meðvitaður um það að ég myndi falla um leið og ég myndi neyta áfengis eða fíkniefna, en ég fell ekki í þær freistingar.“ Hilmar er sjálfstætt starfandi málarameistari og segir reksturinn ganga vel.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=