Samhjalp mars 2019
4 Útgefandi: Samhjálp Ritstjóri: Gísli Freyr Valdórsson Ljósmyndir: Eggert Jóhannesson og fl. Auglýsingaöflun: Samhjálp Útgáfustjóri: Anna María McCrann Ábyrgðarmaður: Vörður Leví Traustason Hönnun og umbrot: Samskipti Skrifstofa Samhjálpar Hlíðasmára 14 – 201 Kópavogur Sími: 561 1000 Netfang: samhjalp@samhjalp.is Heimasíða: www.samhjalp.is Ef þú ert með hugmynd að efni í blaðið eða vilt senda inn grein eða ljósmynd, hafðu þá samband með því að senda póst á netfangið fjaroflun@samhjalp.is Skrifstofa Samhjálpar er opin alla virka daga frá kl. 10:00 - 15:00. 36. árgangur – 1. tölublað 2019 Þ ann 6. júlí 2019 eru 45 ár síðan áfengis- og vímuefnameðferð hófst í Hlaðgerðarkoti. Allt frá upphafi hefur fjöldi einstaklinga farið í gegnum meðferðina og náð góðum árangri. Margir hafa náð tökum á lífi sínu og fjölskyldur margra hafa tekið stakkaskiptum. En alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur og sumir hafa þurft að láta í minni pokann fyrir Bakkusi. Á þeim 45 árum sem Hlaðgerðarkot hefur verið starfrækt hefur margt breyst. Síðastliðin 15 ár hefur verið lögð rík áhersla á faglega meðferð. Meðferðin varir í þrjá mánuði og pláss er fyrir 30 einstaklinga, 10 konur og 20 karla. Í Hlaðgerðarkoti er skipulögð dagskrá alla daga vikunnar, þar sem hver einstaklingur fær fræðslu um alkóhólismann, afleiðingar af notkun vímuefna, áhrif þeirra á fjölskylduna og nánasta umhverfi. Auk þess er lögð áhersla á að fræða um bataferlið og er það gjarnan gert með verkefnavinnu ýmiss konar. Fjölskyldum einstaklinga í meðferð er boðið í viðtal þar sem kynnt eru meðferðarúrræði og stuðningur við aðstandendur. Í Hlaðgerðarkoti er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða meðferð með aðstoð utanaðkomandi fagfólks þegar þörf krefur. Í Hlaðgerðarkoti eru 13 stöðugildi, þar starfa fjórir áfengisráðgjafar, fjórir umsjónarmenn sem skipta með sér vöktum, læknir, hjúkrunarkona og þrír kokkar. Meðferðin byggir á kristilegum gildum, en trúfrelsi er virt í hvívetna. Sem dagskrárstjóri í Hlaðgerðarkoti finn ég sterkt fyrir mikilli velvild í samfélaginu. Margir einstaklingar og fyrirtæki koma færandi hendi og styrkja Hlaðgerðarkot með ýmsum hætti. Fyrir hönd starfsfólks og skjólstæðinga vil ég þakka velunnurum okkar fyrir stuðninginn. Guðrún Margrét Einarsdóttir Dagskrárstjóri í Hlaðgerðarkoti Árangursrík meðferð í Hlaðgerðarkoti
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=