Samhjalp mars 2019

36 Sterk, snörp og skemmtileg – það er Lota LOTA verkfræði- og ráðgjafarstofa er meðal fram- sæknustu þekkingarfyrirtækja á Íslandi og tekst á við fjölda stórra verkefna hérlendis og erlendis. Samhentur hópur starfsfólks hefur að leiðarljósi fagmennsku, öryggi og þjónustulund. Vinnustaðurinn snýst um starfsfólkið og góðan anda. Hjá LOTU er mikið lagt upp úr að veita góðan aðbúnað og andrúmsloft á vinnustaðnum. Þetta látum við kristallast í okkar gildum. Guðríðarstíg 2-4 113 Reykjavík lota@lota.is www.lota.is Sími 560 5400 HÖFUNDUR: JÓN GUNNARSSON Miskunnsemi Samhjálpar M erkileg saga Samhjálpar teygir sig yfir meira en fjóra áratugi og á sér merkilegar rætur. Samtökin standa á styrkum stoðum kristninnar og má rekja upphaf þeirra aftur til ársins 1973, þegar Einar J. Gíslason, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, ákvað að ánafna þeim afmælisgjöfum sem honum bárust á fimmtugsafmæli sínu til samtakanna Samhjálpar sem stofnuð voru jafnhliða. Í markmiðssetningu Samhjálpar segir að samtökin séu til þess að veita bjargir þeim einstaklingum sem halloka hafa farið í lífinu, vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra vandamála, og með því stuðla að velferð og sjálfsbjörg þeirra. Markmið Samhjálpar eru mikilvæg og starf þeirra í þágu bágstaddra samborgara okkar er ómetanlegt. Samhjálp hefur reist við og stutt fjölda fólks til betra lífs og sjálfbjargar og gert alla þá einstaklinga að betri manneskjum sem við sögu samtakanna hafa komið á einn eða annan máta í áranna rás. Þegar ég leiði hugann að upphafi og tilurð Samhjálpar og þeirri mikilvægu gjöf sem Einar J. Gíslason gaf samborgurum sínum og samfélagi, þá kemur óneitanlega upp í hugann sagan um miskunnsama Samverjann. Allir þeir sem fengið hafa einhvern vísi af trúarlegu uppeldi þekkja þá sögu. En eitt er að þekkja söguna úr biblíusögunum og sinni barnatrú og skilja boðskap hennar, en annað er að breyta eftir honum. Boðskap dæmisögu Jesú um miskunnsama Samverjann má forma í eitt orð sem er „náungakærleikur“, og í mínum huga er augljós samsvörun á milli starfs Samhjálpar við umönnun sjúkra og hrjáðra, við boðskap kristindómsins um náungakærleika sem endurómar í áðurnefndri dæmisögu. Eins og við þekkjum segir sagan frá Samverja nokkrum – en Gyðingum og Samverjum kom lítt saman – sem gekk fram á Gyðing sem misþyrmt hafði verið og samborgarar hans sinntu ekki þótt í nauðum væri. Hlúði Samverjinn að honum og flutti til hjúkrunar og sá til þess að honum yrði sinnt og komið til heilsu. Í lok dæmisögunnar sagði Jesú við viðmælanda sinn: „Far þú og gjör slíkt hið sama“, og skiljum við þetta sem svo að Jesú boði að kristið fólk skuli sýna samferðamönnum sínum kærleika. Í okkar kristna samfélagi á Íslandi eru margar vistarverur sem allar eiga þó grunnstoðir sínar í boðskap kærleikans. Samhjálp er ein þessara vistar- vera og ákaflega mikilvæg eins og saga samtakanna sýnir. Náungakærleikur kristninnar er ein undirstaða þessa góða starfs sem unnið er í Samhjálp, og í starfseminni birtist styrkur kristinnar trúar og kirkjunnar sem samfélags kristinna manna. Boðskapur sögunnar um að kristið fólk skuli ástunda náungakærleika gagnvart sam- ferðamönnum sínum er einfaldur og skýr í þessari dæmisögu. Í mínum huga er Samhjálp eitthvert besta og skýrasta dæmið í samfélagi okkar um miskunnsama Samverjann. Þar er náungakærleikurinn öllu ofar, og framtak Einars J. Gíslasonar og þess góða fólks, sem fylgt hefur í fótspor hans, verður seint fullþakkað. Höfundur er alþingismaður.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=