Samhjalp mars 2019

3 EFNISYFIRLIT Eftir mörg ár í neyslu endaði Hilmar Sigurðsson einangraður og illa farinn. Í viðtali við Samhjálparblaðið segir hann fá því hvernig hann náði að snúa lífi sínu við. Diljá Mist Einarsdóttir segir sögu systur sinnar, Susie Rut, sem lést sumarið 2007 eftir að hafa verið í neyslu – og lýsir um leið upplifun fjölskyldunnar af sjúkdómnum sem að lokum felldi hana. Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, matreiddi í sjálfboðavinnu í Hlaðgerðarkoti á aðfangadag og gamlársdag síðastliðinn. Hann lauk sjálfur meðferð þar og vill gefa til baka. Oddfellowar hafa stutt vel við uppbyggingu og framkvæmdir í Hlaðgerðarkoti. Nýbygging Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti var tekin í notkun fyrir jólin. Nú halda framkvæmdir áfram og næsta verkefni er að innrétta eldra húsnæði upp á nýtt. Velferðarnefnd Alþingis og starfsmenn á velferðarsviði Hafnafjarðarbæjar kynntu sér starfsemi Samhjálpar nýlega. Í þessu tölublaði er einnig að finna greinar eftir Jón Gunnarsson, alþingismann, Tryggva Magnússon, umsjónarmann stuðningsheimila Samhjálpar, viðtal við styrktaraðila, ljóð í tilefni páskanna eftir Sigurbjörn Þorkelsson, auk annarra frétta úr starfi Samhjálpar. 6 12 18 20 24 26 VELDU GÆÐI VELDU KJARNAFÆÐI www.kjarnafaedi.is Stolt íslenskrar náttúru Blóðberg • Birkilauf • Aðalbláberjalyng • Einir MEÐ VILLTUM ÍSLENSKUM KRYDDJURTUM Íslenskt heiðalamb

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=