Samhjalp mars 2019
29 R ekstri áfangaheimilisins Sporsins hefur verið breytt frá því sem áður var. Rekstur Sporsins fór fram í húsnæði upp á Höfða, en heimilið var ætlað þeim sem voru nýkomnir úr áfengis- og vímuefnameðferð og áttu ekki í önnur hús að venda. Þar voru sautján herbergi sem ætluð voru báðum kynjum. Eigendur húsnæðisins höfðu ráðstafað því í önnur verkefni, og því var ekki unnt að framlengja þann leigusamning sem var til staðar áður. Þess í stað leigir Samhjálp nú tvö einbýlishús í Reykjavík, sem tekið hafa við þeim skjólstæðingum sem áður dvöldu eða var ætlað að dvelja á Sporinu, þó færri, þar sem aðeins fjórir skjólstæðingar Sporið tekur breytingum dvelja í hvoru húsi. Húsin eru kynjaskipt, þ.e. annað er fyrir konur, en hitt fyrir karla. Strangar kröfur eru gerðar til þeirra sem dvelja í húsunum. Fyrir utan það að vera edrú þurfa íbúar að greiða dvalargjald sitt fyrirfram og leggja fram tryggingu. Sömu reglur gilda og áður giltu á Sporinu, þ.e. að íbúar þurfa að hafa lokið langtímameðferð og að ekki er tekið við fólki beint af götunni. „Húsnæðismarkaðurinn í Reykjavík er erfiður, og það var ekki um auðugan garð að gresja, þegar leitað var að nýju húsnæði undir Sporið,“ segir Guðmundur Sigurbergsson, fjármálastjóri Samhjálpar. „Rekstur áfangaheimilanna hefur þó margsannað gildi sitt, hvað varðar endurhæfingu þeirra einstaklinga sem eru að stíga sín fyrstu skref aftur út í lífið eftir að hafa lokið meðferð. Skjólstæðingarnir greiða leigu sem stendur undir kostnaði og er í samræmi við þá greiðslugetu sem þeir hafa. Þá njóta þeir stuðnings og ráðgjafar starfsmanna Samhjálpar, sækja fundi og fleira sem gagnast þeim við að snúa aftur út í lífið.“ Þess má geta að Samhjálp rekur einnig áfangaheimilið Brú við Höfðabakka, og verður sú góða starfsemi sem þar fer fram óbreytt. Þá rekur Samhjálp einnig áfanga- og stuðningsheimili við Miklubraut í Reykjavík og að Nýbýlavegi í Kópavogi.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=