Samhjalp mars 2019

28 H in árlega merkjasala er hafin hjá Samhjálp. Merkjasalan hefur í gegnum árin reynst ein af öflugustu fjáröflunarleiðum Samhjálpar. Við hvetjum almenning til að taka vel á móti sölumönnum Samhjálpar. Merkin eru seld víða um land, í flestum tilvikum fyrir framan verslanir og á öðrum fjölförnum stöðum. Þá er einnig hægt að panta merkin á skrifstofu Samhjálpar í síma 561-1000 og einnig á vef samtakanna, samhjalp.is. Hægt er að fá merkin send sé þess óskað. Merkið kostar 2.000 krónur. Undirbúningur Reykjavíkurmaraþonsins hafinn R eykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2019 fer fram í 36. sinn þann 24. ágúst nk. Búið er að opna fyrir áheitasöfnun á vefsíðunni hlaupastyrkur.is, en þar geta allir skráðir hlauparar safnað áheitum til styrktar góðum málefnum. Í fyrra söfnuðust tæpar 160 milljónir króna til 175 góðgerðarfélaga. Þá hlupu 24 einstaklingar til styrktar Samhjálp og söfnuðu 600 þúsund krónum, en aldrei fyrr hefur jafn mikið safnast til styrktar Samhjálp. Þá er rétt að geta þess að innan Samhjálpar er einnig hafinn undirbúningur í kringum hlaupið. Um leið og við þökkum þeim sem hlaupið hafa til styrktar samtökunum Merkjasalan hafin á undanförnum árum, viljum við hvetja fólk til að hlaupa til stuðnings Samhjálp í sumar. Nokkrir einstaklingar hafa þegar meldað sig við Samhjálp og vilja hlaupa fyrir samtökin. Sem fyrr segir er hægt að skrá sig á hlaupastyrkur.is, en þá eru hlauparar jafnframt hvattir til að hafa samband við skrifstofu Samhjálpar. Við óskum landsmönnum öllum góðs gengis. Aðstandendur Samhjálpar eiga hrós skilið fyrir gott starf. Samfélag er samvinnuverkefni okkar allra og mikilvægt að við styðjum hvert annað.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=