Samhjalp mars 2019
27 R agnheiður Björg Svavarsdóttir er nýr umsjónarmaður í Hlaðgerðarkoti og umsjónarmaður áfangaheimilisins Sporsins. Ragnheiður Björg starfaði við afleysingar í Hlaðgerðarkoti síðastliðið sumar, en er nú í fullu starfi. Hún er vel kunnug starfseminni í Hlaðgerðarkoti eftir að hafa farið sjálf í gegnum meðferð þar árið 2015. Í framhaldi af því fór hún í Grettistak. Ragnheiður Björg er gift og á þrjú börn. Á smundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, heimsótti Hlaðgerðarkot fyrir áramót ásamt öðru starfsfólki ráðuneytisins. Ásmundur Einar kynnti sér nýbygginguna í Hlaðgerðarkoti, sem nú hefur verið tekin í notkun, auk þess sem hann átt langt og gott samtal við bæði skjólstæðinga og starfsmenn Hlaðgerðarkots og Samhjálpar. Nokkuð var rætt um það sem betur má fara í meðferðarstarfi hér á landi, samskipti við hið opinbera og marga aðra þætti sem snúa að starfsemi Samhjálpar. Það var ánægjulegt að fá Ásmund Einar og starfsmenn ráðuneytisins í heimsókn, og við óskum honum og ríkisstjórninni allri heilla í starfi. H jónin Birgir Viðar Halldórsson og Sigurbjörg Anna Símonardóttir færðu Samhjálp nýlega sjö málverk að gjöf sem hengd verða upp í Hlaðgerðarkoti. Málverkin eru eftir þá Parscha Mirgahawameddin frá Þýskalandi og Dominik Smolik Ráðherra heimsótti Hlaðgerðarkot Gáfumálverk í Hlaðgerðarkot frá Póllandi. Birgir Viðar segir í samtali við Samhjálparblaðið að með gjöfinni hafi þau hjónin viljað styðja við gott málefni og það frábæra starf sem unnið er í Hlaðgerðarkoti. Samhjálp færir þeim Birgi Viðari og Sigurbjörgu Önnu bestu þakkir fyrir gjafirnar, sem munu prýða veggi nýja húsnæðisins í Hlaðgerðarkoti. Nýr starfsmaður í Hlaðgerðarkoti
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=