Samhjalp mars 2019
26 S tarfsmenn á velferðarsviði Hafnafjarðarbæjar heimsóttu Samhjálp þann 27. febrúar sl. og kynntu sér starfsemi og rekstur samtakanna. Starfsmenn velferðarsviðsins kynntu sér meðal annars starfsemina og uppbygginguna á meðferðarheimili Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti V elferðarnefnd Alþingis heimsótti Hlaðgerðarkot þann 30. janúar sl. og fékk kynningu á aðstöðunni og starfsemi Samhjálpar á staðnum. Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í velferðarnefnd, segir í samtali við Samhjálparblaðið að heimsóknin hafi verið bæði ánægjuleg og upplýsandi. „Það var gaman að sjá hversu öflug starfsemi Velferðarnefnd Alþingis kynnti sér starfsemina í Hlaðgerðarkoti fer fram í Hlaðgerðarkoti,“ segir Vilhjálmur. „Þá var sérstaklega ánægjulegt að sjá þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á svæðinu, en mestu skiptir þó sá árangur sem Samhjálp nær með skjólstæðingum sínum, sem tekst að snúa lífi sínu til betri vegar.“ Þá segir Vilhjálmur að einn lærdómurinn úr heimsókn sem þessari sé að sjá, hvað stjórnvöld fá mikið fyrir peninginn með samtökum á borð við Samhjálp, og vísar þar til þeirra fjárframlaga sem koma frá ríkinu. Samhjálp hefur frá stofnun samtakanna, í rúm 46 ár, lagt áherslu á að eiga gott og mikið samstarf við kjörna fulltrúa. Þingmenn, ráðherrar og kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum koma í reglulegar heimsóknir í Hlaðgerðarkot sem og aðrar starfsstöðvar Samhjálpar, fá kynningu á starfseminni og eiga bein samskipti við skjólstæðinga Samhjálpar. Þingmenn í velferðarnefnd Alþingis, frá vinstri; Ólafur Þór Gunnarsson, Halldóra Mogensen, formaður nefndarinnar, Vilhjálmur Árnason og Andrés Ingi Jónsson ásamt Verði Leví Traustasyni, framkvæmdastjóra Samhjálpar. Velferðarsvið Hafnarfjarðar í heimsókn Pökkunarlausnir Örugg pökkun verðmæta Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is VÖRULISTI og heimsóttu í framhaldinu áfangaheimilið Brú, sem og áfanga- og stuðningsheimilin við Miklubraut 18 og á Nýbýlavegi 30 í Kópavogi. Samhjálp leggur áherslu á gott samband við öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, enda koma skjólstæðingar samtakanna víða að.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=