Samhjalp mars 2019

25 Framkvæmdir á efri hæð eldri byggingarinnar eru nú hafnar en þar verða innréttuð ný vistherbergi. við verkið um áramót. Þar sem fjárstuðningur Oddfellowa mun ekki duga til þess að ljúka öllu verkinu var ákveðið að innrétta fyrst ellefu herbergi, en láta þau fimm sem eru staðsett í suðurenda (eldri samkomusal og íbúð) bíða uns fé er fengið til þess hluta verksins. Framkvæmd verksins er á hendi sömu iðnmeistara og sáu um innréttingu nýbyggingarinnar. Innrétting hæðarinnar felst m.a. í því að allir eldri milliveggir eru rifnir, þar sem þeir uppfylltu ekki kröfur um brunaþol eða staðsetningu var breytt. Hæðarskil (loft) að þakrými uppfyllti heldur ekki kröfur um Eldhúsið í nýrri byggingu er búið tækjum af bestu gerð og öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Hér var áður geymsla í hluta eldri byggingarinnar en nú hafa gamla byggingin og sú nýja verið tengdar saman. Innan af eldhúsinu má finna búnings- og sturtuaðstöðu fyrir matreiðslumenn. brunaþol og þurfti það verulegra endurbóta. Er hvert herbergi, samkvæmt kröfum reglugerða, sérstök brunaeining, líkt og um hótel væri að ræða. Allt hita- og ofnakerfi er endurnýjað og allar hreinlætislagnir eru nýjar, sama á við um raflagnir og brunaviðvörunarkerfi. Vélræn loftræsing verður frá hverju snyrti- og baðherbergi og loftþrýstingur jafnaður með innstreymislofti. Í aðalgangi verður niðurbyggt hljóðdeyfiloft með innbyggðri lýsingu. Neyðar- og útilýsing verður í aðalgangi. Gólf í aðalgangi og herbergjum verða lögð harðparketi, en gólf í baðherbergjum með epoxý- Lesendum til glöggvunar fylgir hér myndir af grunni nýja hússins sem nú er risið og hýsir fjölnota salinn sem hér er fjallað um á síðunni - og eldri byggingu í bakgrunni, sem nú er undir framkvæmdum. Nýja eldhúsið teygir sig inn á neðri hæðina á eldri byggingunni þar sem áður var geymsla en á efri hæðinni er nú verið að innrétta ný herbergi, hvar áður var matsalur, kapella, lítil íbúð og vistherbergi. Nú verður öll hæðin nýtt undir vistherbergi, sextán talsins, hvert með sér baðherbergi. Fyrir ofan fylgir mynd af nýju byggingunni. efnum. Álagsveggir í snyrti- og baðherbergjum verða klæddir með Fibo baðherbergisplötum, en allir aðrir veggir og loft máluð á hefðbundinn hátt. Innihurðir verða spónlagðar með eik og lakkaðar. Fullinnréttuð getur hæðin rúmað þrjátíu vistmenn, tvo í einsmannsherbergjum og til að byrja með tuttugu og átta í tveggja manna herbergjum. Eins og áður segir hófust framkvæmdir um s.l. áramót og nú um miðjan mars hafa allir milliveggir, herbergjanna ellefu, verið reistir, þeir klæddir ásamt loftum. Lagðar hafa verið pípur fyrir raflagnir í veggi og loft og unnið er við hita- og hreinlætislagnir. Vinna við smíði og uppsetningu loftræsikerfa er að hefjast, sem og málun, samið hefur verið um smíði innihurða. Er það vænting stjórnenda verksins að taka megi fyrstu herbergin í notkun í maí 2019.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=