Samhjalp mars 2019

24 Í desember 2018 var lokið við fyrsta áfanga endurbóta á húsakosti í Hlaðgerðarkoti. Þann 8. desember var nýr mat- og fjölnotasalur tekinn í notkun ásamt nýju eldhúsi, auk fylgirýma, alls um 330 m². Þessi nýi áfangi var fullbúinn utan sem innan og útisvæði meðfram norður- og austurhliðum var hellulagt. Við opnun höfðu ný húsgögn verið keypt í matsal og hluti framreiðslubúnaðar verið endurnýjaður. Flutningur á matsal og eldhúsi af efri hæð byggingarinnar, frá um 1980, var forsenda þess að hægt væri að ráðast í það verk að endurinnrétta hæðina og breyta því húsrými í herbergi fyrir vistmenn, en það verk var í endurbótaáætlunum Samhjálpar nefnt annar áfangi. Í upphafi var gert ráð fyrir að allur norðurhluti hæðarinnar yrði nýttur undir herbergi, allt að því rými sem til þessa hefur rúmað fyrirlestrarsal og kapellu ásamt íbúð í suðurenda hæðarinnar. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir níu tveggja manna herbergjum með sameiginlegum salernis- og baðherbergjum. MAGNÚS SÆDAL SVAVARSSON, BYGGINGARSTJÓRI Í HLAÐGERÐARKOTI SKRIFAR: Við nánari rýni og umræðu kom fram sú hugmynd að innrétta alla hæðina fyrir vistherbergi og með því að leggja af eldri samkomusal og íbúð. Var Guðmundi Gunnlaugssyni, arkitekt, falið að skoða hagkvæmni þessa kosts. Guðmundur gerði tillöguuppdrátt af hæðinni, þar sem hann kom fyrir sextán herbergjum og fylgir hverju herbergi snyrti- og baðherbergi. Var tekin ákvörðun um að hæðin skyldi innréttuð á grundvelli tillögu Guðmundar, enda fengist nægjanlegt fé til verksins. Sótt var um byggingarleyfi og var sú umsókn samþykkt af byggingarfulltrúa Mosfellsbæjar þann 1. febrúar 2019. Um síðustu áramót ákvað Oddfellowreglan á Íslandi að veita styrk til framkvæmdarinnar, alls 29 milljónir króna, þar sem 20 milljónir króna eru frá Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa og 9 milljónir frá Oddfellowstúkunni Skúla fógeta, sem fagnar 50 ára afmæli sínu nú í vor. Í ljósi þessara höfðinglegu styrkja Oddfellowa var ekki eftir neinu að bíða og hófust framkvæmdir Framhald uppbyggingar í Hlaðgerðarkoti Starfsmannafélag Samhjálpar stóð fyrir kaupum og gaf stóla og borð í nýjan fjölnota sal meðferðarheimilisins í Hlaðgerðarkoti. Starfsmannafélagið hefur í nokkurn tíma safnað í sjóð fyrir góðum verkefnum. Á Þorláksmessu var haldin skötuveisla í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu til styrktar Hlaðgerðarkoti. Þetta var annað árið í röð sem viðburðurinn var haldinn til styrktar starfi Samhjálpar og töluverð aukning var í fjölda gesta á milli ára. Hvítasunnukirkjan á Akureyri hélt kótilettu- kvöld í nóvember sl., þar sem ágóði kvöldsins fór til uppbyggingar í Hlaðgerðarkoti. Með þeim framlögum til viðbótar við framlag starfsmannasjóðs Samhjálpar safnaðist það fjármagn sem nýtt var til kaupa á nýjum húsgögnum. Starfsmannafélag Samhjálpar gaf ný húsgögn

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=