Samhjalp mars 2019

22 Þ eir Tómas Kristjáns- son, formaður Barþjónaklúbbsins, og Grétar Matthíasson, stjórnarmaður, komu færandi hendi á skrifstofu Samhjálpar á milli jóla og nýárs. Barþjónaklúbburinn hélt söfnunarkvöld í aðdraganda jóla, þar sem söfnuðust á þriðja hundrað þúsund krónur, sem runnu til Samhjálpar. Þá styrkti matvörukeðjan Krónan samtökin um 500 þúsund krónur fyrir jólin. Krónan hafði beðið almenning að tilnefna góðgerðarsamtök til að styrkja fyrir jólin, og hlaut Samhjálp stuðning flestra. Hjördís Erla Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Krónunnar, afhenti styrkinn. Samhjálp fékk einnig stuðning frá ríkisstjórninni í aðdraganda jóla, en ríkisstjórnin hefur á undanförnum árum veitt hina ýmsu styrki í desember. Þessir styrkir voru nýttir til að hjálpa skjólstæðingum Kaffistofunnar og öðrum að halda hátíðleg jól. Veglegir styrkir fyrir jólin Fjölmargir aðilar styrktu Samhjálp í aðdraganda jóla Thulin Johansen, Þórður Valdimarsson, Jens Pétur Hjaltested frá Oddfellow-stúku nr. 3 Hallveigu, ásamt Natalie T. Antonsdóttur, gjaldkera Samhjálpar. Þeir Sigurður og Þorsteinn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, færðu Kaffistofu Samhjálpar tólf stórar Mackintosh dósir. Á myndinni eru einnig starfsmenn Kaffistofunnar, þau Sædís og Yusuf. Nemendur Sjálandsskóla í Garðabæ færðu Kaffistofu Samhjálpar fjölda boxa af heimabökuðum smákökum. Margir skjólstæðingar Kaffistofunnar hafa ekki bragðað heimabakaðar smákökur í mörg ár og nutu þeirra því vel í aðdraganda jóla. Þá komu fulltrúar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og færðu Kaffistofunni tólf stórar Mackintosh dósir, og rétt fyrir jól kom Ingibjörg Óðinsdóttir, mannauðsstjóri slökkviliðsins, með fimm hamborgarhryggi frá starfsfólki. Rétt fyrir jól kom Ásgeir Guðjónsson færandi hendi á Kaffistofuna með 19 lambalæri, 14 hamborgarhryggi og meðlæti til að nýta í máltíðir yfir jólin. Þessu til viðbótar gaf Emmessís Kaffistofunni töluvert af rjómaís fyrir jólahaldið. Og það voru fleiri sem færðu Samhjálp veglegar gjafir fyrir jólin. Thulin Johansen, Þórður Valdimarsson og Jens Pétur Hjaltested, allir meðlimir Oddfellow-stúku nr. 3, Hallveigu, færðu Samhjálp gjöf að andvirði 300 þúsund króna. Þá færðu Hlynur B. Gunnarsson og Sigurður Jónsson, meðlimir Oddfellow-stúku nr. 1, Ingólfi, Samhjálp 500 þúsund króna styrk. Þá er vert að nefna að yfir jólahátíðina voru fjölmargir sem lögðu hönd á plóg á Kaffistofu Samhjálpar, sem og öðrum starfsstöðvum Samhjálpar. Öllum þessum aðilum og öðrum þeim sem veittu Samhjálp aðstoð með einum eða öðrum hætti yfir jól og áramót eru færðar bestu þakkir.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=