Samhjalp mars 2019
19 Þess má geta að fyrir utan Hlaðgerðarkot hefur Theódór Gunnar einnig sinnt sjálfboðastörfum hjá Mæðrastyrksnefnd og um síðustu jól eldaði hann einnig jólamatinn í Konukoti. Eignaðist fjölskylduna aftur Eftir að hafa lokið meðferð bjó hann hjá foreldrum sínum í tæpa átta mánuði, á meðan hann kom undir sig fótunum fjárhagslega. Eitt af því var meðal annars að gera upp gamlar neysluskuldir. Hann segir að sitt helsta verkefni hafi jafnframt verið það að sýna heiðarleika á öllum sviðum. „Ég þurfti að öðlast traust foreldra minna á ný, og þau sýndu mér bæði traust og stuðning í þessu ferli,“ segir Theódór Gunnar. „Það var ekki sjálfgefið, þar sem þau höfðu margoft séð mig falla áður. En nú sáu þau árangur og hafa stutt vel við bakið á mér. Það er ómetanlegt.“ Í framhaldinu tók hann saman við barnsmóður sína, en saman eiga þau stúlku sem nú er fimm ára. Þau eiga nú von á öðru barni saman og lífið leikur við fjölskylduna. Þá á Theódór Gunnar aðra dóttur sem nú er á fermingaraldri. Hann segir að vel hafi tekist að endurnýja kynni við hana eftir að hann lauk meðferð. Theódór Gunnar hefur á undanförnum árum starfað sem kokkur í Réttarholtsskóla í Reykjavík. Þar var Jón Pétur Zimsen áður skólastjóri, en hann er nú aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Þrátt fyrir að hafa verið í mikilli neyslu á sínum tíma tókst honum ávallt að halda vinnu sinni. „Ég á Jóni Pétri mikið að þakka,“ segir Theódór Gunnar. „Hann sýndi mér mikla þolinmæði og mikinn kærleik á sínum tíma. Þó svo að ég hafi alltaf staðið mig í vinnu þá kom það fyrir, á meðan ég var í neyslu, að ég mætti undir áhrifum í vinnuna eða þá þunglyndur eftir neyslutímabil. Hann hefði auðveldlega getað vikið mér frá störfum, en í stað þess að gera það hjálpaði hann mér að komast í meðferð. Það var hann sem hringdi á Vog til að koma mér í meðferð, og þaðan fór ég í Hlaðgerðarkot. Þegar ég lauk meðferð gat ég snúið aftur til vinnu, sem er alls ekki sjálfsagt mál. Það eru svona menn sem gera gæfumuninn í lífinu.“ Gat snúið aftur í vinnu Ég á Samhjálp og starfsfólkinu í Hlaðgerðarkoti mikið að þakka. Þau tóku ámóti mér í mjög alvarlegu ástandi. “ „Ég gafst í raun upp á sjálfum mér og fann mikla breytingu í kjölfarið. Í Hlaðgerðarkoti eignaðist ég líka trú á Guð, tók skírn og trúi því að ég hafi skilið gamla lífið eftir. Það veitir mér styrk á hverjum degi.“
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=