Samhjalp mars 2019

11 Hilmar og eiginkona hans, Rosemary, eiga nú von á sínu öðru barni. er að koma sér í vinnu eða hafa allavega einhverja dagskrá sem þeir fylgja. Ég hafði verkefni þetta fyrsta ár mitt, en var samhliða farinn að mála aftur.“ Fótaði sig upp á nýtt Sem fyrr segir hafa síðustu sjö ár verið þau bestu í lífi Hilmars. Á þeim tíma sem liðinn er hefur hann eignast konu, Rosemary, sem hann kynntist í Nígeríu, þegar hann fór þangað til að sinna hjálparstarfi. Þau eiga saman eitt barn og eiga nú von á öðru. Hann er í góðu sambandi við eldri dóttur sína sem hann á úr fyrra sambandi og um leið þakklátur fyrir að hafa haft tækifæri til að byggja líf sitt upp á ný. Þá starfar hann sem sjálfstæður málarameistari og reksturinn gengur vel. „Mér hefur tekist að snúa lífinu við. Eignast fjölskyldu, koma fjármálum mínum í lag, eignast vini og þannig mætti áfram telja,“ segir Hilmar. „Ég tel mig vera mjög blessaðan mann. Staðan núna er mun betri en hún var fyrir 4-5 árum og þetta var ekki alltaf auðvelt. Ég þurfi að koma fjármálum mínum í lag eftir tvo áratugi af óreiðu og það tókst með góðu skipulagi. Ég var líka það heppinn að kynnast Rosemary sem hjálpaði mér mikið að skipuleggja fjármálin. Mér hefur tekist að fóta mig upp á nýtt í lífinu og fyrir það er ég þakklátur.“ Náttgalli 25999 lindex.is 100% lífræn bómull

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=