Samhjalp_des_2019
18 Georg Viðar Björnsson var góður vinur Guðmundu Guðrúnar. Hann var afbrotamaður þótt hann sæti aldrei inni, en hafði áður fyrr verið illa farinn af áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Eftir að hafa lokið meðferð í Svíþjóð sneri hann aftur til Íslands og hafði löngun til að hjálpa gömlum drykkjufélögum. Árið 1971 hóf hann að hýsa óreglumenn sem voru í sömu stöðu og hann hafði verið áður. Georg Viðar varð einnig náinn vinur Einars J. Gíslasonar, sem þá var forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu. Árið 1973 tók Guðmunda Guðrún þátt í stofnun Samhjálpar með þeim Georg Viðari og Einari og sat þar í stjórn um árabil. „Það fór mikill tími í þetta, en þetta var hennar líf. Hún elskaði að taka þátt í þessu starfi og gerði það af heilum hug,“ segir Anna. Aðspurð segir Anna að hana reki ekki minni til þess að það hafi erfitt að vera kona á þessum tíma og koma að stofnun Samhjálpar. „Það var aldrei vandamál svo ég viti,“ segir Anna. „Hún naut mikillar virðingar og þeir sem tóku þátt í stofnum Samhjálpar hlustuðu á hennar skoðanir og virtu. Þetta var vissulega erfitt verkefni í byrjun, að stofna Samhjálp. Samtökin höfðu ekki mikið fjármagn á milli handanna, en byrjuðu strax að bjarga einstaklingum sem allir aðrir voru búnir að afskrifa. Þeir aðilar nutu ekki mikillar virðingar í samfélaginu, en það hefur breyst með tímanum. Fólk ber meiri virðingu Systurnar úr yngra hollinu. fyrir starfi Samhjálpar í dag en það gerði á þessum tíma.“ Rétt er að geta þess að rúmu ári eftir stofnun Samhjálpar hófu samtökin að bjóða upp á meðferðarúrræði í Hlaðgerðarkoti. Guðmunda Guðrún fór reglulega þangað, hélt fyrirlestra og stóð fyrir viðburðum.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=