Samhjalp_des_2019

15 og síðan aftur á aðfangadag og færði þeim þá gjafir. Þeir tóku vel á móti henni og með árunum myndaðist með þeim mikill vinskapur. „Hún fór þangað um klukkan 14 á aðfangadag til að færa þeim gjafir,“ segir Anna. „Pabbi studdi hana heilshugar í þessu verkefni. Flesta daga bar mamma hvíta svuntu við eldhússtörfin, enda var hún heimavinnandi. Eðli málsins samkvæmt fylgdi því nokkuð umstang að undirbúa jólin heima við, en mér er sérstaklega minnistætt þegar hann tók rólega af henni svuntuna og sagði við hana að hann og við dæturnar myndum redda því sem þyrfti að gera heima við á aðfangadag. Mamma kom síðan heim um fjögurleytið og hún og pabbi kláruðu þá að undirbúa það sem eftir var að gera fyrir aðfangadagskvöld. Stofan var alltaf lokuð á aðfangadag og bara opnuð rétt fyrir klukkan sex um kvöldið, þegar við settumst niður og snæddum jólamatinn. Þetta var alltaf yndislegur dagur.“ Í samræðum við fangaverðina fékk Guðmunda Guðrún að vita hversu lengi fangarnir áttu að sitja inni. „Hún vissi að einhverjir myndu losna út um hávetur og fannst þá ómögulegt að þeir ættu ekki þann fatnað sem til þurfti á þeim árstíma,“ segir Anna. „Hún keypti því vettlinga, ullarsokka, húfur, trefla og fleira sem mátti reynast gagnlegt – og færði þeim það í jólagjafir. Það var hugsun á bakvið hverja gjöf. Hún lét síðan biblíuvers í hvern pakka.“ Gleðisvipurinn á Önnu leynir sér ekki þegar hún rifjar upp þessa hlýju æskuminningar af þeim systrum, systrunum úr yngra hollinu, sitjandi við borðstofuborðið að pakka inn gjöfum með móður sinni. „Við fengum líka það hlutverk að hlaupa niður á Laugaveg í ýmsar verslanir til að kaupa þessar gjafir, svo sem vasaklúta hjá Guðsteini, greiður, sokka og fleira,“ rifjar Anna upp. „Þetta var hennar hjartans mál. Þetta grópar góðar minningar í hjartað og líf mitt og systkina minna mótast af þessu. Hún „Hún naut mikillar virðingar og þeir sem tóku þátt í stofnum Samhjálpar hlustuðu á hennar skoðanir og virtu.“ “ Anna fyrir framan æskuheimili sitt á Njálsgötu í Reykjavík.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=