Samhjalp_des_2019

12 K ótilettukvöld Samhjálpar er var haldið fyrir fullum sal í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudaginn 10. október sl. Kótilettukvöldið, sem nú var haldið í 13. sinn, er mikilvægur fjáröflunarþáttur í starfsemi Samhjálpar. Þetta var fjórða árið í röð sem kótilettukvöldið var haldið á Hótel Sögu. Líkt og undanfarin ár höfðu matreiðslumeistarar Hótel Sögu yfirumsjón með matreiðslu kvöldsins, en Kristín Ósk Gestsdóttir, matreiðslumeistari í Hlaðgerðarkoti, sá um undirbúning veitinganna. Þjónar frá Hótel Sögu, ásamt sjálfboðaliðum á vegum Samhjálpar, þjónuðu til borðs. Um 300 manns sóttu viðburðinn. Kótilettukvöldið í ár markaði þó ákveðin tímamót því þetta var síðasti viðburður Samhjálpar undir stjórn Varðar Leví Traustasonar, sem lét af störfum fyrir aldurs sakir. Forseti Íslands, Hr. Guðni Th. Jóhannesson, var heiðursgestur kvöldsins og fór fögrum orðum um starf Samhjálpar í ávarpi sínu. Þá minntist hann sérstaklega samskipta sinna við Vörð Leví á undanförnum árum. Guðni Ágústsson, fv. þingmaður og ráðherra, var veislustjóri kvöldsins, annað árið í röð. Guðni lét gamminn geysa eins og venjulega. Svo vel vildi til að nokkrir sitjandi alþingismenn sóttu viðburðinn og þurftu þeir að gjöra svo vel að sitja undir skotum veislustjórans sem nýtur þess að hafa ekki afskipti af stjórnmálum í dag. Allt var það þó á góðum nótum og þingmennirnir hlógu ekki síður en salurinn. Hótelstjóra og öðru starfsfólki og stjórn Hótel Sögu eru færðar bestu þakkir fyrir aðstoðina við viðburðinn. Samhjálp þakkar einnig þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem lögðu samtökunum lið og hjálpuðu til við að gera Kótilettukvöldið ógleymanlegt. Hér á síðunni má finna myndir frá þessu vel heppnaða kvöldi. Bent Marinósson, ljósmyndari, tók myndirnar. Þess má til gamans geta að Kótilettukvöldið verður haldið 22.október 2020 í Súlnasal Hótel Sögu. Framkvæmda­ stjórinn kvaddi með kótilettum Færeyski tónlistar- maðurinn Olvheðin Jacobsen tók nokkur lög og hlaut góðar undirtektir. Líkt og fyrri ár var uppselt á Kótilettukvöldið og þétt setið í Súlnasal Hótel Sögu. Það var vel veitt á Kótilettukvöldinu og aðstaðan í Súlnasal til fyrirmyndar. Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, var veislustjóri kvöldsins. Gestir kvöldsins skemmtu sér vel. Stjórn Samhjálpar kvaddi Vörð Leví Traustason, fráfarandi framkvæmdastjóra, og Guðrúnu Einarsdóttur, dagskrárstjóra í Hlaðgerðarkoti, með blómvendi og góðum gjöfum. Bæði láta þau nú af störfum fyrir aldurs sakir. Frá vinstri á myndinni: Hjónin Ester Karin Jacobsen og Vörður Leví Traustason, Guðfinna Helgadóttir, formaður stjórnar, Guðrún Einarsdóttir, Hafliði Kristinsson, Valgerður Jensen og Þóra Gréta Þórisdóttir.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=