Veiðikortið 2023

72 veidikortid.is Staðsetning: Sauðlauksdalsvatn er í Vestur- Barðastrandasýslu á Vestfjörðum, í nágrenni Patreksfjarðar. Leiðarlýsing: Vegalengdin frá Reykjavík er u.þ.b. 380 km og 25 km frá Patreksfirði. Með því að taka ferjuna Baldur yfir Breiðafjörð er hægt að stytta vegalengdina til muna, eða um 150 km. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er um 0,35 km2 að flatarmáli og stendur í um 10 m hæð yfir sjó.  Gott aðgengi er að vatninu, en aðeins má aka eftir merktum slóðum.  Veiðisvæðið:   Það má veiða í öllu vatninu, en aðallega er veitt þeim megin sem komið er að því. Vatnið hentar vel fyrir fluguveiði, enda er auðvelt að vaða aðeins út í gulum sandinum.  Gisting: Gott tjaldstæði með eldunar- og hreinlætisaðstöðu er á Patreksfirði. Þar má einnig finna hótel og gistiheimili. Veiði: Í vatninu er bleikja, bæði sjógengin og staðbundin. Einnig eru vænir urriðar í vatninu og hafa menn verið að veiða allt að 16 punda fisk þar. Uppistaðan í bleikjuveiðinni er 1-1,5 pund að þyngd. Agn:  Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Kvölds og morgna. Annað: Sauðlauksdalur er sögufrægur í Íslandssögunni, en þar hefur ýmislegt markvert gerst. Sauðlauksdalur er fyrrum kirkjustaður og stórbýli við sunnanverðan Patreksfjörð. Björn Halldórsson var prestur í Sauðlauksdal um miðja 18. öld og ræktaði þar kartöflur fyrstur Íslendinga árið 1760. Margir sögustaðir eru í næsta nágrenni og stórkostlegt landslag. Reglur:  Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Bannað er að veiða í ánni sem rennur í vatnið. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.  Veiðimenn fara beint inn að vatni og hafi Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar gesta. Veiðimönnum ber að skila veiðiskýrslum á netinu, veidikortid.is  Sauðlauksdalsvatn Íslaust - 30. sept 24/7 65° 32,509’N, 23° 59,272’W REYKJAVÍK 380 KM PATREKSFJÖRÐUR 25 KM Stök leyfi til sölu á vefverslun.veidikortid.is

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=