Veiðikortið 2023

52 veidikortid.is Staðsetning: Laxárvatn er á Laxárdalsheiði í Dölum Leiðarlýsing: Vatnið er um 180 km frá Reykjavík, eða um 30 km frá Búðardal. Ekið er um Bröttubrekku í áttina að Búðardal, ef komið er að sunnan, annars farið hefðbundnar leiðir frá Norðurlandi eða Vestfjörðum. Rétt áður en komið er að Laxá í Dölum er beygt upp Laxárdalinn og ekið að bænum Sólheimum til að skrá sig. Til að komast að vatninu er best að fara inn á gamlan veg, sem liggur frá þjóðveginum og niður með Lægðarlæk, en þar er hægt að leggja bílum og ganga niður að vatni. Upplýsingar um vatnið: Laxá í Dölum á upptök sín í Laxárvatni. Vatnið er um 0,5 km 2 að stærð og í um 150 m hæð yfir sjávarmáli. Veiðisvæðið: Veiða má í öllu vatninu. Gisting: Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið á eigin ábyrgð og í samráði við landeiganda, en þar er þó enga hreinlætisaðstöðu að finna. Veiði: Góð veiði er í vatninu, en þar er einungis urriði. Algeng stærð á fiski er 1-3 pund. Daglegur veiðitími: Leyfilegt er að veiða frá morgni til kvölds. Skráning inn á svæðið þarf að vera á milli 7:00 og 22:00. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Stranglega bannað er að leggja net. Besti veiðitíminn: Góð veiði er allt sumarið. Reglur: Veiðimenn verða að skrá sig við komu á bænum Sólheimum áður en haldið er til veiða, en sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Einnig fá veiðimenn veiðiskýrslu, sem þarf að skila útfylltri við lok veiða. Aðeins er heimilt að koma til veiða á milli 7:00 og 22:00. Öll umferð á mótorhjólum / fjórhjólum er bönnuð nema í samráði við veiðivörð. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Hundar eru aðeins leyfðir á svæðinu í samráði við veiðivörð. Veiðivörður: Daði Einarsson á Sólheimum. S: 863- 7702. Laxárvatn 1. maí- 30. sept 7:00- 22:00 65° 12,760’N, 21° 19,228’W REYKJAVIK 180 KM BÚÐARDALUR 30 KM

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=