Veiðikortið 2023
34 veidikortid.is Hítarvatn er á Mýrum í Borgarbyggð. Leiðarlýsing: Um 120 km akstur er frá Reykjavík, ef ekið er um Borgarnes. Fólksbílafært er alveg inn að vatni. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er 7,6 km2 að stærð og stendur í 147 m hæð yfir sjávarmáli. Úr vatninu rennur Hítará, sem er með þekktari laxveiðiám landsins. Svæðið er tilvalið fyrir fjölskyldur til að eyða góðri stund saman við veiðar og útivist. Mikil náttúrufegurð er við vatnið. Vekja ber athygli á, að mikið er af mýflugum við vatnið. Veiðisvæðið: Veiða má í öllu vatninu. Gisting: Korthafar Veiðikortsins geta tjaldað við vatnið án endurgjalds gegn því að ganga vel um svæðið. Einnig er þar að finna gott gangnamannahús, þar sem kaupa má gistingu hjá Ferðafélagi Borgarfjarðahéraðs, nánari uppl, með tölvupósti, ffb@ffb.is . Veiði: Mjög góð silungsveiði er í vatninu, bæði urriði og bleikja og eru dæmi þess, að veiðimenn komi heim með yfir hundrað fiska eftir helgardvöl við Hítarvatn. Góð veiði er jafnan þar, sem lækir renna í vatnið, undir hrauni sem og inn í botni vatnsins. Daglegur veiðitími: Leyfilegt er að veiða frá morgni til kvölds. Tímabil: Veiðitímabilið er frá síðustu helgi í maí til 31. ágúst. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Nokkuð jöfn veiðivon er yfir veiðitímabilið. Reglur: Athugið að ekkert símasamband er upp við vatnið. Veiðimenn verð því að tryggja að hafa Veiðikortið eða dagleyfi við höndina þegar farið er til veiða til að geta sýnt það veiðiverði þegar og ef hann vitjar veiðimanna. Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl. Aðeins eru leyfðar 40 stangir í vatninu á hverjum tíma. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðimönnum er bönnuð notkun báta á vatninu. Þá skal einnig tekið fram að lausaganga hunda er bönnuð. Veiðivörður: Vöktun er á svæðinu og veiðimenn þurfa að tryggja að þeir séu með Veiðikortið við höndina. Kristján Friðriksson - www.fos.is 26. maí - 31. ág. 7:00- 24:00 64° 52,022’N, 22° 0,075’W Hítarvatn -á Mýrum REYKJAVIK 120 KM BORGARNES 41 KM Stök leyfi til sölu á vefverslun.veidikortid.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=