Veiðikortið 2023

108 veidikortid.is Staðsetning: Ölvesvatn (vatnasvæði Selár)  er á Skagaheiði, í Skefilsstaðahreppi í Skagafirði. Upplýsingar um vatnasvæðið: Ölvesvatn er hið langstærsta á vatnasvæði Selár, en einnig má veiða í Fossvatni, Selvatni, Grunnutjörn, Andavatni og Stífluvatni, Eiðsá, Fossá, auk lækja sem renna á milli vatna. Ölvesvatn er um 2,8 km2 að stærð og nokkuð djúpt.   Leiðarlýsing: Fjarlægð er um 300 km. frá Reykjavík og 40 km. frá Sauðárkróki.  Afleggjarinn frá Hvalnesi er um 6 km. jeppavegur að Ölvesvatni. Veiðisvæðið: Veiði er heimil á öllu vatnasvæðinu, þ.e.a.s. Ölvesvatni, Fossvatni, Selvatni, Heyvötnum, Grunnutjörn, Andavatni, Stífluvatni, Eiðsá, Fossá, auk lækja sem renna á milli vatna. Gisting:  Hægt er að kaupa leyfi til að tjalda á Hvalnesi auk þess sem að við Ölvesvatn er hægt að leigja tvö aðstöðuhús með eldunar- og gistiaðstöðu fyrir allt að 6 manns í hvoru húsi. Þar er kamar. Aðstöðuhúsin þarf að panta með fyrirvara hjá umsjónarmanni í Hvalnesi í s: 453-6520 eða s: 893-7756 eða senda tölvupóst á netfangið: hvalnes730@simnet.is . Veiði:  Á vatnasvæðinu er bæði bleikja og urriði.  Mikið er af ½ - 3 punda fiski á vatnasvæðinu, ásamt urriða, sem getur orðið allt að 6-7 pund. Daglegur veiðitími : Heimilt er að veiða allan sólarhringinn. Tímabil: Veiðitímabilið veltur öllu jöfnu á veðri, en yfirleitt er ekki orðið fært upp að vatni fyrir en seinnihluta maí og stendur veiðitíminn yfirleitt fram í miðjan september, en þá veiðist minna af bleikju. Agn:  Leyfilegt agn er fluga, maðkur, makríll og spónn. Góð aðstaða er til fluguveiða. Besti veiðitíminn: Veiði er nokkuð jöfn yfir daginn.  Reglur: Aðgengi að veiðisvæðinu er takmarkað og verður að hringja áður og panta áður en mætt er á staðinn. Bókanir með aðstöðuhúsi njóta forgangs. Veiðikortshafar þurfa að skrá sig í Hvalnesi og fá lykil að svæðinu. Sýna þarf Veiðikortið og skilríki. Netaveiði er stranglega bönnuð svo og meðferð skotvopna. Einnig er bannað að skilja eftir sig rusl og aka utan vega. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa.  Í Hvalnesi fá veiði Ölvesvatn á Skagaheiði (Vatnsvæði Selár) Sjá tímabil 24/7 65° 58,071’N, 20° 2,966’W REYKJAVÍK 300 KM SAUÐÁRKR. 40 KM 4X4 JEPPAVEGUR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=