Veiðikortið 2022

82 veidikortid.is Staðsetning: Urriðavatn er í nágrenni Egilsstaða. Leiðarlýsing: Vatnið er í 650 km fjarlægð frá Reykjavík og 5 km frá Egilsstöðum. Þjóðvegir 1 og 925 liggja við vatnið. Greiðfært er fyrir alla bíla að vatninu. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er u.þ.b. 1,1 km² að flatarmáli. Mest dýpt er um 15 m og stendur vatnið í um 40 m hæð yfir sjávarmáli. Hafralónslækur og Merkilækur renna í Urriðavatn, en þaðan er útfall Urriðavatnslækjar. Veiðisvæðið: Veiða má í öllu vatninu. Helstu veiðistaðir eru við ósa Hafralækjar og Urriðavatnslækjar, en einnig við hitaveitutanka og víðar. Gisting: Hægt er að kaupa tjaldstæði hjá Skipalæk (4 km) sem er skammt frá Lagarfljóti. Ekki er heimilt að tjalda við vatnið. Veiði: Í vatninu er eingöngu bleikju að finna. Uppistaðan er um 1 punda bleikja, en þó slæðast með stærri fiskar. Daglegur veiðitími: Leyfilegt er að veiða frá morgni til kvölds. Tímabil: Veiðitímabilið er allt árið. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Fyrst á vorin, þegar ísa leysir. Mest veiðist í stillu. Annað: Gott berjaland er í nágrenni Urriðavatns auk þess sem hægt er að skella sér í VÖK baðhús sem eru við vatnið. Reglur: Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Veiðikorthafar þurfa að skrá sig á bænum Urriðavatni og sýna nauðsynleg skilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðivörður á staðnum: Jón Steinar Benjamínsson, Urriðavatni, S: 471-2060 Urriðavatn Allt árið 24/7 65° 19,126’N, 14° 25,874’W -á Héraði REYKJAVÍK 650 KM EGILSSTAÐIR 5 KM Hálfsjálfvirkar haglabyssur

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=