Veiðikortið 2022

76 Fluguveiði í stöðuvötnum Hvernig flugur eru árangurríkar og hvernig ber ég mig að? Fluguveiði með kaststöng? Algengast er að veiðimenn notist við flugustangir en það er vel hægt að notast við kastangir og flotholt. Þá er gott að hafa tauminn eins langan og menn treysta sér og draga hægt. Púpur með kúluhaus gagnast vel. Fluguveiði með flugustöng Línuval: Öllu jöfnu er skemmtilegast að veiða í vötnum með flotlínu og flestir nota eingöngu flotlínu. Þrátt fyrir það getur verið ágætt að nota hálfsökkvandi línu til að koma línunni undir yfirborðið. Það getur hentað t.d. þegar veitt er í mikilli öldu því þá er hægt að halda línunni stöðugri og veiðimaður verður í betra sambandi við fiskinn þegar hann tekur. Taumar: Í vatnaveiði gildir jafnan að hafa eins grannan taum og menn treysta sér til. Algent er að menn séu að nota 5-8 punda tauma. Ef of sverir taumar eru notaðir er hætta á því að fiskur taki síður. Jafnan gildir að draga hægt inn og jafnvel það hægt að flugan sjálf bara rétt lyftist með hægum hreyfingum. Þetta á við þegar veitt er með púpum. Þegar veitt er með straumflugum gilda önnur lögmál og þá er dregið inn mishratt eftir aðstæðum. Flugnaval: Algengast er að veiðimenn notist við dökkar púpur með kúluhaus. Þær gefa öllu jöfnu góða veiði í öllum íslenskum vötum. Ef fiskur er að taka í yfirborðinu er gott að fara í léttari silungaflugur sem veiða ofar, nær yfirborðinu. Þurrflugur gefa einnig góða veiði þegar fiskur er að taka í yfirborðinu. Stundum gefa straumflugur jafnvel betri veiði, en það á við þegar egnt er fyrir urriða. Það eru mýmargar öflugar straumflugur í boði og má þar nefna Nobblera í ýmsum litum, Black Ghost, Dýrbít svo dæmi séu tekin. Svört vinylpúpa með rauðu garni og kúluhaus er til í ýmsum útfærslum. Hér er dæmi um flugu sem veiðir vel í íslenskum vötnum. Hér má sjá afbrigði af Black Ghost með keiluhaus. Þessi sekkur vel og hentar vel þar sem dýpi er gott.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=