Veiðikortið 2022
74 veidikortid.is Staðsetning: Syðridalsvatn er í Bolungarvík við Ísafjarðardjúp. Leiðarlýsing: Leiðin til Bolungarvíkur er um 470 km, ef ekið er um Arnkötludal, á bundnu slitlagi frá Reykjavík. Þaðan eru aðeins nokkrir km. til vatnsins. Upplýsingar um vatnið: Hér er um mjög gott veiðivatn að ræða. Það er um 1 km² að stærð og liggur um 3 m fyrir ofan sjávarmál. Þangað gengur mikið af fiski úr sjó, s.s. sjóbleikja, sjóbirtingur og lax. Aðal veiðisvæðið er við ósa ánna, sem renna í vatnið. Á Miðdalsodda og Geirastaðaodda er æðarvarp. Veiðimenn eru beðnir að taka tillit til þess og fara ekki þar um frá maíbyrjun og til júníloka. Veiðisvæðið: Veiði er heimil í öllu vatninu. Meðfylgjandi eru not af aðliggjandi ám, Gilsá og Fossá frá 1. apríl - 20. ágúst. Ekki má veiða í Ósá, sem rennur úr vatninu, og ekki nær henni en sem nemur merkjum í Grjótnesi og Vatnsnesi. Hægt er að kaupa veiðileyfi í Ósá sér vilji menn veiða í henni og fást veiðileyfin hjá veiditorg.is . Gisting: Í Bolungarvíkurkaupstað er fyrirtaks tjaldsvæði og gistiheimili, sundlaug og ýmis afþreying í boði. Veiði: Staðbundin bleikja, sjóbleikja, sjóbirtingur og stöku lax. Einnig má stunda dorgveiði þegar ís er á vatninu, en aðeins í fullu samráði við veiðivörð. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Júlí og ágúst. Reglur: Lausaganga hunda er stranglega bönnuð. Vinsamlega skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vega. Handhafar Veiðikortsins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Arnþóri Jónssyni á Geirastöðum. Veiðibókin er í kassa við tröppurnar á Geirastöðum. Þar skal einnig skrá veiði dagsins. Börn innan 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðivörður: Arnþór Jónsson, Geirastöðum, S: 456-7118 eða GSM: 897-7370 Syðridalsvatn 1. apríl - 20. sept 7:00- 22:00 66° 7,323’N, 23° 15,244’W FYRIR VEIÐIMENN REYKJAVÍK 470 KM ÍSAFJÖRÐUR 15 KM
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=