Veiðikortið 2022
72 veidikortid.is Staðsetning: Svínavatn er í Húnavatnshreppi í A-Húnavatnssýslu, í nágrenni við Blönduós. Leiðarlýsing: Frá Reykjavík eru um 240 km í vatnið. Farið er út af þjóðvegi 1 við þjóðveg 724 og þaðan eru um 9 km að vatninu. Upplýsingar um vatnið. Vatnið er 12 km 2 að stærð, og liggur í 130 m hæð yfir sjávarmáli. Mesta dýpi er um 30 metrar. Veiðisvæðið: Veiðisvæðið er fyrir landi Stóra- Búrfells og Reykja í Húnavatnshreppi, eins og meðfylgjandi kort sýnir. Veiðikortshafar geta farið til veiða án þess að tilkynna komu sýna sérstaklega en þurfa að hafa Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Athugið að slóðar geta verið varasamir í bleytu. Fara þarf í gegnum blátt hlið , ekið í gegnum tún, niður að vatninu, þegar veiða á í landi Stóra-Búrfells. Veiði: Í vatninu veiðist mest af urriða en einnig er þar töluvert af bleikju. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Jöfn veiði er allan veiðitímann. Reglur: Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl. Akstur utan vega er stranglega bannaður. Veiðimenn geta farið til veiða án þess að tilkynna komu sýna sérstaklega, en þurfa að hafa Veiðikortið við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Veiðivörður: Ef veiðimenn vilja fá upplýsingar á staðnum geta þeir hringt í ábúendur: Grím á Reykjum í GSM: 892-4012 og Jón á Stóra-Búrfelli í GSM: 868-3750. Svínavatn 1. júní - 31. ágúst 7:00- 24:00 -í landi Reykja og Stóra-Búrfells 65° 32,230’N, 20° 5,315’W REYKJAVÍK 240 KM BLÖNDUÓS 20 KM GALLERÍ BYSSUR BYSSUSMIÐJA AGNARS Fagmennska í fyrirrúmi Skemmuvegur 12, blá gata 200 Kópavogur, Iceland Sími 891 8113 doktoraggibyssa@simnet.is Vöðluviðgerðir Goretex - Neoprene -ekki bara byssur! HVERAFOLD 1-3 112 REYKJAVÍK
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=