Veiðikortið 2022
70 veidikortid.is Staðsetning: Sléttuhlíðarvatn er við þjóðveg 76, rétt norðan við Hofsós og hálftíma akstur frá Siglufirði. Leiðarlýsing: Vegalengd frá Reykjavík er um 345 km, 20 km frá Hofsósi og 50 km frá Sauðárkróki. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er 0,76 km 2 að stærð og í 14 m hæð yfir sjávarmáli. Veiðisvæðið: Eingöngu er leyfilegt að veiða í landi Hrauns og Miðhóls. Skilti eru við veiðimörk. Gisting: Heimilt er að tjalda við vatnið í samráði við veiðivörð auk þess sem hægt er að leigja veiðihús í nágrenni við vatnið. Veiði: Í vatninu eru bæði sjógengnir og staðbundnir fiskar. Sjóbleikja og urriði veiðast þar í miklu magni. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Jöfn og góð veiði er yfir veiðitímabilið. Annað: Landeigandi ber enga ábyrgð á tjóni er korthafar Veiðikortsins kunna að verða fyrir, eða öðru sem upp kann að koma í tenglsum við veru veiðimanna á viðkomandi veiðisvæði. Reglur: Góð umgengni er skilyrði. Allur akstur um landið skal vera í samráði við landeigenda. Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl. Korthafar þurfa að skrá sig á Hrauni og sýna þarf bæði Veiðikortið og persónuskilríki. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðivörður: Magnús Pétursson á Hrauni, S: 453-7422 eða GSM: 618-0402. Sléttuhlíðarvatn 1. maí - 20. sept 8:00- 24:00 -í landi Hrauns 66° 2,371’N, 19° 20,062’W REYKJAVÍK 345 KM HOFSÓS 20 KM Stök leyfi til sölu á vefverslun.veidikortid.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=