Veiðikortið 2022

52 KORTIN Það eru mestar líkur á að þú, lesandi góður, sért handhafi Veiðikortsins fyrst þú ert að lesa þennan stúf og því er tilefni til að óska þér til hamingju með kortið. Á þeim tæplega 20 árum sem Veiðikortið hefur glatt okkur hefur orðið til ákveðið, þó óformlegt, veiðisamfélag meðal handhafa þess. Hver sá sem hampar kortinu gengur að vísum veiðisystkinum á öllum aldri, hringinn í kringum landið sem framvísa því með meiri gleði og ánægju heldur en flestum öðrum kortum. En með Veiðikortinu fylgja líka önnur kort, því að í þessum bæklingi er að finna veiðistaðakort með skýrum mörkum veiðisvæða, leiðbeiningar um aðkomu að vötnunum og fleira nytsamlegt. Á veraldarvefnum má síðan finna enn önnur kort af sömu vötnum þar sem fengsælla veiðistaða er getið í bland við annan fróðleik. Með öll þessi kort upp á vasann ætti sumrinu 2022 að vera nokkuð vel borgið en þá er bara spurningin hvað Veiðikortshafar ætli að gera í vetur? Þar gætu einhver önnur kort komið að góðum notum, t.d. aðildarkort að einhverju þeirra fjölmörgu stangveiðifélaga sem eru á landinu og má þar nefna Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Ármenn, Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar, Stangaveiðifélag Akureyrar o.fl . Öll þessi félög bjóða upp á starfsemi yfir vetrartímann sem vert er að kynna sér. Margt af því sem þessi félög bjóða upp á er opið almenningi og um að gera að nýta sér öll slík boðskort. Allt sem styttir biðina eftir næsta sumri er af hinu góða og ekki verra ef það tengist veiði og veiðimennsku. Sjálfur hnýti ég veiðitímabilin saman, sem er hin besta skemmtun. Þá er ég einn sér eða í smærri, jafnvel stærri hópum veiðifélaga og vina. Þar sem ég veiði eingöngu á flugu liggur beinast við að ég hnýti mínar flugur - eftir Kristján Friðriksson hjá FOS.IS

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=