Veiðikortið 2022

38 veidikortid.is Staðsetning: Hreðarvatn er í Norðurárdal við þjóðveg nr. 1. Leiðarlýsing: Ekið er Norðurárdalinn og beygt vestur rétt sunnan við Bifröst. Vatnið er í um 115 km fjarlægð frá Reykjavík sé ekið um Hvalfjarðargöng og um 30 km frá Borgarnesi. Upplýsingar um vatnið: Hreðavatn er aðgengilegt og gjöfult veiðivatn í fallegu umhverfi skammt frá Bifröst. Vatnið er um 1 km2 og mesta dýptin er um 20m. Það stendur í um 56 m. hæð yfir sjávarmáli. Veiðisvæðið: Heimilt er að veiða í Hreðavatnslandi sem er norðanmegin í vatninu. Sjá veiðimörk á korti. Gisting: Bannað er að tjalda við vatnið en ýmsir ferðaþjónustuaðilar eru í nágrenninu. Veiði: Í vatninu veiðast bæði bleikja og urriði, jafnt litlir og stórir fiskar. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Best er að veiða í Hreðavatni fyrri hluta sumars en nokkuð jöfn veiði er yfir sumarið. Reglur: Veiðimenn mega fara beint til veiða en skulu hafa Veiðikortið á sér til að sýna veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna. Veiðimenn eru einnig vinsamlegast beðnir um að fylla út veiðiskýrslu á vefnum okkur senda okkur á veidikortid@veidikortid.is . Veiðimenn eru vinsamlegast beðnir um að ganga vel um svæðið og ekki skilja eftir sig rusl. Öll bátaumferð er bönnuð. Hreðavatn 20. maí - 30. sept 7:00- 24:00 64° 45.598’N, 21° 34.965’W @María Gunnarsdóttir SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM REYKJAVIK 115 KM BORGARNES 30 KM

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=