Veiðikortið 2022
34 veidikortid.is Staðsetning: Hraunsfjarðarvatn er á Snæfellsnesi. Leiðarlýsing: Vatnið er um 160 km frá Reykjavík, um 15 km í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður. Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum, að hægt er að aka nær alveg upp að vatninu á vegaslóða, frá Baulárvallavatni, en síðasta spölinn þarf að fara fótgangandi (15 mín.). Slóði þessi er einungis fær fjórhjóladrifnum bílum. Upplýsingar um vatnið: Vatnið er um 2,5 km 2 að stærð og 84 m djúpt, þar sem það er dýpst. Það er í um 207 m hæð yfir sjávarmáli. Þaðan rennur Vatná í Baulárvallavatn. Veiðisvæðið: Veiða má í öllu vatninu. Gisting: Hægt er að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, en þar er þó enga hreinlætisaðstöðu að finna. Veiði: Góð veiði er í vatninu. Einungis urriði er í vatninu, gjarnan vænn. Meðalþyngd fiska er 1-2 pund, en algengt er, að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund, einkum í ljósaskiptunum. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Fiskur getur legið djúpt og þá þarf að sökkva agninu. Spónn og maðkur gefa að jafnaði ágæta veiði. Í ljósaskiptunum syndir urriðinn inn á grunnið við landið og er þá gott að nota flugu. Besti veiðitíminn: Góð veiði er allt sumarið. Yfirleitt er best að veiða í ljósaskiptunum. Reglur: Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og ganga vel um svæðið. Korthafar þurfa að hafa Veiðikortið og persónuskilríki við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Hraunsfjarðarvatn Íslaust - 30. sept 7:00 - 24:00 64° 55,257’N, 22° 54,738’W Sí Smiðjuvellir 32, Akranesi Sími 431 5090 - Fax 431 5091 www.apvest.is REYKJAVIK 160 KM STYKKISHÓLMUR 15 KM
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=