Veiðikortið 2022
26 veidikortid.is Staðsetning: Haugatjarnir eru í Skriðdal. Leiðarlýsing: Frá Reykjavík eru um 650 km og um 35 km eru til Egilsstaða. Tjarnirnar eru við bæinn Hauga sem stendur við þjóðveg eitt. Upplýsingar um veiðisvæðið: Um er að ræða tvær tjarnir, sem eru mjög hentugar fyrir fjölskyldur. Þær eru ekki stórar en mjög aðgengilegar. Þar er mikið af fiski og því sérstaklega skemmtilegar fyrir ungu kynslóðina. Mikið og gott berjaland er í nágrenninu. Veiðisvæðið: Veiði er heimil í báðum tjörnunum. Gisting: Handhafar Veiðikortsins hafa heimild til að tjalda endurgjaldslaust við vatnið, á eigin ábyrgð. Taka skal fram, að hvorki er þar að finna skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu. Veiði: Einungis urriði veiðist í tjörnunum. Daglegur veiðitími: Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðtíminn: Jöfn veiði er allt tímabilið. Reglur: Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vegar. Handhafar Veiðikortins þurfa að skrá kortanúmer og kennitölu hjá umsjónarmanni, Hugrúnu Sveinsdóttur á Haugum. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiðivörður: Hugrún Sveinsdóttir, Haugum, S: 892-7813. Haugatjarnir 1. maí - 30. sept 24/7 64° 58,984’N, 14° 37,134’W REYKJAVIK 650 KM EGILSSTAÐIR 35 KM GALLERÍ BYSSUR BYSSUSMIÐJA AGNARS Fagmennska í fyrirrúmi Skemmuvegur 12, blá gata 200 Kópavogur, Iceland Sími 891 8113 doktoraggibyssa@simnet.is Vöðluviðgerðir Goretex - Neoprene -ekki bara byssur! HVERAFOLD 1-3 112 REYKJAVÍK
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=