Veiðikortið 2022

24 veidikortid.is Staðsetning: Gíslholtsvatn er í Holtahreppi í Rangárþingi. Leiðarlýsing: Frá Reykjavík eru um 85 km að Gíslholtsvatni. Beygt inn á Heiðarveg nr. 284 frá þjóðvegi nr. 1 rétt austan við Þjórsá. Upplýsingar um vatnið: Tvö vötn eru á svæðinu, Eystra og Vestra- Gíslholtsvatn. Handhafar Veiðikortsins mega aðeins veiða í eystra vatninu að vestanverðu, þ.e.a.s. í landi Gíslholts. Gíslholtsvatn er um 1,6 km 2 að flatarmáli og í 65 m hæð yfir sjávarmáli. Mesta dýpt er um 8 m en meðadýpt um 2,5 m. Veiðisvæðið: Veiði er heimil í eystra vatninu, fyrir landi Gíslholts. Sjá kort. Gisting: Mögulegt er að fá að tjalda við vatnið í samráði við landeiganda. Veiði: Staðbundin bleikja og urriði. Bleikjan er öllu jöfnu nokkuð smá en urriðinn getur verið vel vænn. Daglegur veiðitími: Leyfilegt er að veiða allan sólarhringinn. Tímabil: Veiði er heimil frá því að ísa leysir. Einnig má stunda dorgveiði í vatninu, þegar svo ber við, í samráði við veiðivörð. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Nokkuð jöfn veiði er í vatninu yfir sumarið. Urriðinn tekur yfirleitt sérstaklega vel snemma á sumrin. Annað: Veiðimenn eru beðnir um að fara farlega þar sem bakkarnir eru viðkvæmir á sumum stöðum og eitthvað hefur hrunið úr þeim á stöku stað. Reglur: Vinsamlegast skiljið ekki eftir rusl og stranglega bannað er að aka utan vega. Handhöfum Veiðikortsins er heimilt að fara beint niður að vatni en skilja Veiðikortið eftir í bílglugga. Lausaganga hunda er bönnuð á svæðinu. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Veiði úr bátum er bönnuð. Veiðivörður / umsjónarmaður: Bryndís Dyrving, Gíslholti, S: 487-6553 / GSM: 847-5787 Gíslholtsvatn Allt árið 24/7 63° 56,842’N, 20° 30,179’W REYKJAVIK 85 KM SELFOSS 30 KM

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=