Veiðikortið 2022
14 veidikortid.is Staðsetning: Baulárvallavatn er á Snæfellsnesi. Leiðarlýsing: Vatnið er um 160 km frá Reykjavík, um 15 km í suður frá bæði Grundarfirði og Stykkishólmi, á leið frá Vegamótum í norður. Nýja vatnaleiðin á Snæfellsnesi gerir það að verkum, að hægt er að aka alveg upp að vatninu. Upplýsingar um vatnið : Vatnið er um 1,6 km2 að stærð og 47 metra djúpt, þar sem það er dýpst. Vatnið er í um 193 m hæð yfir sjávarmáli. Í það rennur Vatnaá og úr því rennur Baulá, sem síðar sameinast Straumfjarðará, sem er fræg fyrir góða laxveiði. Veiðisvæðið: Veiðisvæðið, sem Veiðikortið gildir fyrir, er frá norðurbakka Vatnaá að útfalli Straumfjarðarár. Gisting: Tjalda má endurgjaldslaust við vatnið, en hvorki er þar um skipulagt tjaldstæði né hreinlætisaðstöðu að ræða. Veiði: Urriðaveiði er góð í vatninu. Meðalþyngd fiska er 2-3 pund, en algengt er, að þar veiðist stærri fiskar, 5-6 pund, einkum í ljósaskiptunum. Daglegur veiðitími : Leyfilegt er að veiða frá morgni til kvölds. Tímabil: Veiðitímabil hefst þegar ísa leysir og stendur fram til 30. september. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Fiskur getur legið djúpt og þarf þá að sökkva agninu. Spónn og maðkur gefa að jafnaði ágæta veiði. Í ljósaskiptunum ferðast urriðinn inn á grunnið við landið og þá er gott að nota flugu. Besti veiðitíminn : Góð veiði er allt sumarið. Yfirleitt er best að veiða í ljósaskiptunum. Reglur: Veiðimenn eru beðnir um að skilja ekki eftir sig rusl og ganga vel um svæðið. Korthafar þurfa að hafa Veiðikortið og persónuskilríki við höndina þegar veiðivörður vitjar veiðimanna. Börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd með korthafa. Baulárvallavatn Íslaust - 30. sept 7:00 - 24:00 64° 54,699’N, 22° 52,640’W Jarle Gjerde REYKJAVIK 160 KM STYKKISHÓLMUR 15 KM
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=