Áramótablað Hjálparsveita Skáta í Kópavogi 2021

58 ÁRAMÓTABLAÐ HSSK 2021 V ikuna 25. júlí til 1. ágúst voru fimm fé- lagar í vikulangri hálendisvakt í Dreka, norðan Vatnajökuls. Hálendisvakt björgunarsveitanna hefst árlega í lok júní þegar björgunarsveitir víðsvegar af landinu fara upp á hálendi til að vera til taks og bregðast við þeim verkefnum sem berast. Markmiðið er að stytta viðbragðstíma björg- unaraðila og draga úr álagi, en töluverðan tíma getur tekið að komast úr byggð til að bregðast við útköllum á hálendinu. Vaktirnar eru á fjórum stöðum yfir sumarið, Dreka við Öskju, Landmannalaugum á Fjallabaki, Nýjadal á Sprengisandi og í Skaftafelli. Ferðalagið í Dreka Strax í byrjun, þegar skipulagning hálendisvaktarinnar hófst, var ljóst að best væri að leggja af stað degi fyrr, á laugardegi, til að vera mætt á skikkanlegum tíma til að leysa af Ársæl sem stóð vaktina á undan. Ferðalaginu var því skipt í tvo hluta þar sem gist var í húsi Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveit á föstudegi áður en haldið var áfram norður á Mývatn og þaðan áleiðis í Dreka. Tveir félagar fóru lengri leið eða úr Langadal í Þórsmörk, yfir Sprengisand með stoppi í Nýjadal, Gæsavatnaleið yfir Flæðurnar og komu svo loks í Dreka þar sem hópurinn sameinaðist. Fyrstu dagarnir á vaktinni voru rólegir og tiltölulega fáir ferða- menn á svæðinu. Veðrið gæti að einhverju leyti hafa spilað inn í þar sem ansi þykk þoka lá yfir svæðinu. Herðubreið í felum Við ákváðum að láta veðrið ekki stöðva okkur í að skoða og kynnast svæðinu. Fyrstu dagana heimsóttum við Herðubreiðarlind- ir, Gljúfrasmið og rætur Herðubreiðar þar sem við þurftum að nota ímyndunaraflið til að sjá fjallið sem var umvafið þykkri þoku. Þrír úr hópnum nýttu tækifærið til að fara í rafmagnaðan fjallahjólatúr um svæðið og um kvöldið var efnt til matarboðs með skálavörðunum í Dreka. Enn voru rólegheit á svæðinu og lítið um verkefni sem þurfti að leysa. Næsta dag var ákveðið að fara í langan bíltúr í Kverkfjöll þar sem við hittum skálavörð og landvörð í Sigurðarskála. Þar datt hópurinn í lukkupottinn og fékk upplýsingagöngu við rætur Kverkjökuls með landverðinum sem fræddi okkur um sögu svæðisins. Næst var haldið lengra meðfram Vatnajökli þar sem hópurinn fékk útkall og þurfti því að snúa við. Um var að ræða mann sem datt af mótorhjóli og hafði slasað sig ná- lægt gatnamótum F910 og F903. Þegar kom- ið var á svæðið var maðurinn kominn í bíl landvarðar í Hvannalindum og fékk far með Kóp 5 áleiðis niður til móts við sjúkrabíl. Restin af hópnum hélt til baka í Dreka til að byrja undirbúning á kvöldmat og hittu þar fleiri félaga sveitarinnar sem voru á ferðalagi með börnunum. Því var skellt í sameigin- legan kvöldverð með alls kyns góssi, grilluðu kjöti og rjómalöguðu pasta. Eftir kvöldverð var haldið í annað verkefni sem var að að- stoða hjón við að koma bílnum sínum aftur upp á veg eftir að hafa runnið út af þegar verið var að víkja fyrir umferð á móti. Eftir umræður um hvernig best væri að ná bílnum upp var ákveðið að nota spilin á báðum bílum til að hafa sem mestan stuðning við bílinn. Það gekk gríðarlega vel og voru hjón- in þakklát fyrir aðstoðina og sögðu hópinn vera eins og hvolpasveitin sem barnabörnin dýrka og dá. Sól og blíða til að kóróna vaktina Loks vaknaði hópurinn upp við sól og heið- skíran himin. Það kom því að sjálfsögðu ekki annað til greina en að skella í góða göngu. Ákveðið var að hluti af hópnum fengi að ganga frá Öskju og yfir í Dreka sem er Hálendisvakt í Dreka Sigga Beta við Gljúfrasmið. MYND: SIGURBJÖRG METTA SIGURJÓNSDÓTTIR Fræðsluganga með landverði við Kverkjökul. MYND: SIGURBJÖRG METTA SIGURJÓNSDÓTTIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=