Áramótablað Hjálparsveita Skáta í Kópavogi 2021
56 ÁRAMÓTABLAÐ HSSK 2021 S ala á neyðarkalli er fjáröflunarátak björgunarsveitanna sem gerir þeim kleift að vera í stakk búnar til að bregðast við útköllum á faglegan máta með vel þjálfuðu fólki og góðum tækjabúnaði. Slíkt er gífurlega mikilvægt til að geta brugðist rétt við þegar á reynir, bæði fyrir björgunarsveitarfólk sem þarf að vera tilbúið að takast á við þær aðstæður sem þeim mæta hverju sinni en einnig fyrir almenning sem leggur traust sitt á að björg- unarsveitarfólk hafi getu og búnað til að koma til hjálpar. Þekkingaröflun félaga og fjármagn til búnaðarkaupa gerist ekki af sjálfu sér heldur fyrir tilstuðlan allra sem styrkja björgunarsveitir svo sem með kaupum á neyðarkalli. Í nóvember 2021 var neyðarkallinn til sölu í sextánda sinn. Það sem var frábrugðið fyrri árum var að neyðarkallinn var seldur í tvígang þetta árið því salan á litla neyðarkallinum árið 2020 frestaðist vegna heimsfaraldurs og þeim takmörkunum sem honum fylgdu. Hjálparsveit skáta í Kópavogi vill því þakka bæjarbúum góðar viðtökur við sölu neyðarkallsins í ár. Fyrir utan að vera mikilvæg fjáröflun fyrir björgunarsveitirnar eru góðar viðtökur á sölu neyðarkallsins einnig hvetjandi fyrir félagsmenn sveitanna sem finna stuðning almennings og munu nýta hann til að efla starfið enn frekar. Bestu þakkir fyrir ykkar svörun við okkar neyðarkalli! Að því sögðu er neyðarkallinn fyrir löngu búinn að festa sig í sessi hjá landsmönnum og orðinn safngripur. Þeir sem eiga elstu neyðar- kallana þykja ríkir, þeir sem eiga alla neyðar- kallana eru hetjur. Okkur fannst því gráupp- lagt að setja hér upp yfirlit yfir neyðarkallana frá upphafi. Hvað átt þú marga? Hér að neðan getur þú merkt við hvaða neyðarkalla þú átt. Vala Dröfn Hauksdóttir Inga Rún Sæmundsdóttir Neyðarkallarnir frá upphafi 2006 Almennur björgunarsveitarkall. Fyrsti neyðarkallinn var hinn almenni björgunarsveitarmaður, mættur á vettvang tilbúinn með talstöðina og bros á vör. ÓFÁANLEGUR 2007 Fjallabjörgunarkona. Fjallabjörgunarkonan mætir þegar útköll verða á fjöllum. Í HSSK er starfræktur flokkur undanfara sem er þjálfaður í að bregðast hratt við þegar óhöpp verða í fjalllendi. ÓFÁANLEG 2008 Sjóbjörgunarkall. Sjóbjörgunarmaðurinn kemur til hjálpar þegar útköll verða úti á sjó. Í HSSK er öflugur bátaflokkur sem sinnir sjóbjörgun og aðstoð. Sveitin keypti sinn fyrsta bát árið 1974. ÓFÁANLEGUR 2009 Björgunarkall með björgunarhund. Í HSSK er ekki formleg hundasveit en vitum að björgunarhundar geta, og hafa, skipt sköpum í leitum á fólki. 2010 Rústabjörgunarkall. HSSK á gám fullan af verkfærum sem nýtast í rústabjörgun. Mikilvægasta tækið, að sögn flokksmeðlima, er kaffivélin. 2011 Fjallaskíðakona. Fjallaskíði nýtast vel á jökli og ef mikill snjór er á leitarsvæði. 2012 Kafarinn. Í HSSK er ekki starfandi kafarahópur en slíkir hópar eru til hjá nokkrum öðrum sveitum. 2013 Fyrstuhjálparkona. Fyrsta hjálp á vettvangi slyss er oft í hendi björgunarsveitarmanna. Farartæki sveitarinnar eru vel búin sjúkrabúnaði en einnig eru allir félagar með fyrstuhjálpartösku í sínum bakpoka. ÓFÁANLEG 2014 Fluglínukall. Það eru ófáir sjómenn sem eiga líf sitt að þakka fluglínunni. 2015 Bílakall eða „olíumaur“. Það eru allar sveitir með sína „olíumaura“. Það eru félagarnir sem nota vinnukvöldin til að dytta að tækjum sveitarinnar og tryggja að þau séu ávallt tilbúin í næsta útkall. 2016 Óveðurskall. Í óveðrum þarf að elta alls kyns hluti út um allt, festa, skorða, skrúfa, halda og forða frá ótrúlegustu hlutum. Rústaflokkur sveitarinnar er með umsjón með óveðurskistum sveitarinnar. 2017 Vélsleðakall. Sleðaflokkur HSSK er með 5 vélsleða. Sleðar eru t.a.m. fyrsti valkostur þegar óhöpp verða uppi á jökli því að þeir komast hraðar yfir en skíðafólk og snjóbíll og fara auðveldar yfir en bílar. 2018 Björgunarkall úr fortíðinni. Björgunarkallar fortíðarinnar kölluðu nú ekki allt ömmu sína. Yngri kynslóðin gæti (og hefur) nú lært eitt og annað af björgunarsveitarköllum fortíðarinnar. 2019 Drónakona. Í HSSK hefur verið starfandi drónahópur í nokkur ár. Drónar eru t.d. góðir þegar leita þarf á stöðum sem er erfitt að komast að eða til að leita á stóru svæði úr lofti. 2020 Björgunarkall með björgunarhund. Við í HSSK erum ekki með formlega hundasveit en vitum að björgunarhundar geta, og hafa, skipt sköpum í leitum. 2021 Sjóbjörgunarkall. HSSK er með öflugan bátaflokk og á tvo björgunarbáta sem heita Stefnir og Sædís. MYNDIR: LANDSBJÖRG - SIGURÐUR Ó. SIGURÐSSON
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=