Áramótablað Hjálparsveita Skáta í Kópavogi 2021

54 ÁRAMÓTABLAÐ HSSK 2021 N ýverið fór Halldór Vagn Hreinsson félagi í HSSK til Finnlands á vegum Björgunarskóla Slysavarnafélagins Landsbjargar til að afla sér menntunar er varðar vinnu við bjarganir á ísilögðum stöðuvötnum og straumvötnum. Vöntun hefur verið á þessari þekkingu innan björg- unarsveitanna. Einnig hefur skort þekkingu á hvernig meta skal öryggi ísilagðra vatna og hvernig best er að meta aðstæður á vettvangi. Markmið ferðarinnar var að meta hvort það verklag sem kennt var á þessu námskeiði ætti erindi til björg- unarsveita á Íslandi. Námskeiðsefnið og rann- sóknir tengdar efninu voru þróaðar af björgunaraðilum er nefnast Rescue3Canada og er það hluti af námsefni Rescue3. Björgunarskólinn hefur verið í góðu samstarfi við Rescue3 í Kanada síðastliðin ár og fengið þaðan námsefni. Flóða- og vatna- námskeið Rescue3 eru vel þekkt um allan heim í bæði björgunar- og afþreyingariðnað- inum. Hægt er að fræðast meira um Rescue3 og námskeiðin þeirra á www.rescue3.com og www.rescue3europe.com . Mikil afþreying er iðkuð á ísilögðum vötnum í Kanada, m.a. veiði, skautun og skíðun, og óhöpp því nokkuð algeng. Einnig er töluvert um slys við ísilagðar ár og hafa kanadískir bjögunaraðilar leitað eftir þekkingu er varðar örugg viðbrögð í þessum aðstæðum. Á námskeiðinu sem Halldór sótti var farið vel yfir hvernig ís myndast, hvar veiku lögin eru staðsett og hvernig best má hátta björgun, bæði við það að koma sjálfum sér úr hættu- legum aðstæðum og við að bjarga öðrum úr vök. Halldór hefur lengi unnið við straumvötn innan ferðaþjónustunnar og einnig stundað straumvatnsferðir sem áhugamál. Frá árinu 2014 hefur hann kennt straumvatnsbjörg- unarnámskeið innan Landsbjargar og tekið þátt í vetrarútköllum tengdum straumvatni. Þetta námskeið færði Halldóri kennsluréttindi til kennslu hér heima og er það mikill fengur bæði fyrir HSSK sem og Björgunarskóla Slysavarnafélagins Landsbjargar. Reynslan af námskeiðinu var góð. Farið var yfir grunn- atriði ísmyndunar og haldgóð þekking situr eftir um hvernig meta skal hvort ís teljist nógu traustur til að vinna á ásamt því hvernig öryggivitund og búnaði skuli vera háttað. Íris Marelsdóttir F jallahópur Hjálparsveitar skáta í Kópa- vogi var endurvakinn í nóvember 2021. Hópurinn stendur fyrir fjallgöngum félaga þar sem farið er í styttri og lengri göngur. Gengið er um fjöll og útivistarsvæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Fyrir utan að auka á súrefnisbirgðirnar og njóta úti- vistar eru slíkar göngur einnig hugsaðar til að kynnast útkallssvæðum betur. Útköll geta orðið við krefjandi aðstæður þar sem allra veðra er von og því er mikilvægt að þekkja til svæða þegar farið er á vettvang. Einu sinni í mánuði eru gengnar hefðbundar gönguleiðir í kringum höfuð- borgarsvæðið líkt og Helgafell í Hafnarfirði eða á Esjuna. Lengri ferðir eru farnar um helgar þar sem annað hvort er farið í langar dagsferðir eða helgarferðir og gist í tjaldi eða skála. Flokkar innan björgunarsveita eru oft sérhæfðir þar björgunarsveitarfólk getur aflað sér frekari reynslu og sérþekkingar innan síns áhugasviðs. HSSK býr svo vel að hafa fjölbreytta flokka sem halda úti öflugu starfi með æfingum og störfum innan síns sérsviðs. Slíkir flokkar eru t.d. bátaflokkur, sem bregst við útköllum á sjó, eða straum- vatnsflokkur sem sérhæfir sig í björgun í straumvatni. Á meðan sérhæfðir flokkar eru gífurlega mikilvægir fyrir björgunarstarf er líka gott að hafa breiða þekkingu margra félagsmanna á útkallssvæðum. Fjallahópur HSSK er hugsaður sem vettvangur fyrir þá sem vilja halda við almennri þjálfun með því að ganga fjöll og auka þekkingu á svæðum í nærumhverfi höfuðborgarsvæðisins. Við hlökkum til að reima á okkur skóna og halda áfram að arka á fjöll með félögum á nýju ári! Inga Rún Sæmundsdóttir Agnes Þorkelsdóttir Fjallahópur Straumvatnsbjörgun og björgun úr vök MYNDIR: HALLDÓR VAGN HREINSSON MYND: INGA RÚN SÆMUNDSDÓTTIR Agnes skoðar leiðarval á korti. MYND: INGA RÚN SÆMUNDSDÓTTIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=