Veiðikortið 2020
5 Veiðikortið 2020 - frelsi til að veiða! 00000 Veiðikortið 2020 veitir nær ótakmarkaðan aðgang að 34 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 7.900 krónur. Þessi upplýsingabæklingur fylgir endurgjaldslaust með Veiðikortinu. Í honum má finna gagnlegar upplýsingar um vatnasvæðin sem í boði eru. Nauðsynlegt er að fara vel yfir þær reglur sem gilda á hverju vatnsvæði fyrir sig þar sem þær geta breyst á milli ára. Á vefnum okkar veidikortid.is eru ítarlegar upplýsingar, fréttir og myndir. Þar er hægt að skrá sig á póstlista okkar. Endilega sendið okkur myndir, fréttir og aðrar upplýsingar á netfangið veidikortid@veidikortid.is. Gott er að fylgjast með okkur á Facebook þar sem hægt er að sjá nýjustu fréttir, myndir beint frá bakkanum og fleira skemmtilegt sem gagnast veiðimönnum. Breytingar á vatnsvæðum 2020: Það eru fáar breytingar á vatnasvæðum Veiðikortsins fyrir sumarið 2020. Hlíðarvatn í Hnappadal er komið inn og Laxárvatn í Dölum dettur út. Almennar reglur: Veiðikortið gildir fyrir skráðan handhafa með eina stöng. Börn yngri en 14 ára veiða frítt með korthafa. Korthafar þurfa að merkja kortið með kennitölu sinni í þar til gerðan reit á baki kortsins . Þegar skráning fer fram hjá landeiganda eða veiðiverði ber notanda að sýna Veiðikortið og skilríki, eða samkvæmt uppgefnum reglum í bæklingi. Veiðimenn eru hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja hvorki eftir sig rusl né önnur óæskileg ummerki. Einnig biðjum við veiðimenn að virða reglur um beitu og tilmæli sem gilt geta sérstaklega fyrir ákveðið vatnasvæði. Álaveiðar eru bannaðar samkvæmt reglugerð nr. 408/2019 og skal sleppa öllum veiddum áli. Reglur um hvert vatnasvæði er að finna á upplýsingasíðum vatnanna. Skráning á afla: Á vefnum okkar er hægt að sækja skjal á Excel- formi til að halda utan um veidda fiska. Gott væri ef veiðimenn sendu okkur veiðiskýrslur í lok hverrar veiðiferðar. Einnig viljum við benda veiðimönnum á að notast við www.veidibok.is til að halda utan um veiðiferðir og afla. Handhafa Veiðikorts er óheimilt að afhenda það þriðja aðila til notkunar og geta veiðimenn þurft að sanna eignarhald sitt á Veiðikorti sínu hjá veiðiverði. English VEIÐIKORTIÐ 2020 - “The Fishing Card” Veiðikortid is a economic choice for fishermen and travellers. With the card in hand you can fish as much as you like in about 34 lakes around Iceland for only ISK 7900. The Veiðikortið package includes this brochure in Icelandic, but of course also with some basic information in English. There you can access general information regarding the lakes, maps and other valuable information, such as opening hours and days, contacts etc. More detailed english translation is available at www.veidikortid.is, where you can print out more detailed information about each lake and the general use of the card. For travellers we recommend a general road atlas (or gps) to help finding these lakes. General rules The card is valid for one person with one rod, and also for accompanying children under the age of 14. Legal bait is worm, lure and fly in most cases. Your ID-number should be written on the back of the card. Please read all given rules for each lake before fishing, such as regarding registration and etc. If you are travelling to Iceland with your fishing gear please read information on our website about disinfection process before entering the country with used fishing gear. Please send us feedback regarding your experience or some photos, if you don´t mind, at veidikortid@veidikortid.is * The card only gives permission to fish in the lakes included in this brochure. You can´t fish in other rivers and lakes without license. One card is for one person with one rod! Enjoy your fishing in Iceland and please visit our website and Facebook site. facebook.com/veidikortid www.veidikortid.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=