Veiðikortið 2020
40 veidikortid.is Staðsetning: Langavatn á Mýrum liggur í sunnanverðum Langadal í Mýrasýslu, norðaustur af Grímsstaðamúla. Leiðarlýsing: Leiðin að Langavatni liggur eftir þjóðvegi nr. 1 um Borgarnes að Svignaskarði. Þar er ekinn 13 km langur afleggjari, jafnan fólksbílafær, á vinstri hönd, upp með Gljúfurá. Vegur getur orðið varasamur fyrri hluta sumars. Upplýsingar um vatnið: Langavatn er um 5,1 km 2 að flatarmáli og hefur 36 metra dýpi, þegar mest er. Það liggur 215 metra yfir sjávarmáli í fallegu umhverfi. Þangað rennur Langavatnsá að norðan, en Beilá að austan. Úr suðvesturhorni þess fellur hin kunna Langá til suðurs. Langavatn hefur verið notað til vatnsmiðlunar og því getur yfirborðshæð þess verið nokkuð breytileg. Helstu veiðistaðir eru austarlega í vatninu við hólma, sem eru fram undan leitarmannakofa við vatnið. Góðir veiðistaðir eru einnig við útfall Langár. Veiðisvæðið: Veiða má í vatninu öllu. Gisting: Korthafar Veiðikortsins geta tjaldað endurgjaldslaust við vatnið, en enga hreinlætisaðstöðu er þar að finna. Veiði: Í vatninu veiðast bæði bleikja og urriði, jafnt litlir og stórir fiskar. Netaveiði er bönnuð fyrir handhafa Veiðikortsins. Agn: Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn. Besti veiðitíminn: Best er að veiða í Langavatni fyrri hluta sumars. Reglur: Veiðimenn skulu hafa Veiðikortið á sér til að sýna veiðiverði þegar hann vitjar veiðimanna. Veiðimenn eru einnig vinsamlegast beðnir um að fylla út veiðiskýrslu á vefnum og senda okkur á veidikortid@veidikortid.is . Langavatn 15. júní - 20. sept 7:00 - 24:00 Kristján Friðriksson - www.fos.is 64° 46,692’N, 21° 45,390’W Langholtsvegi 111 REYKJAVIK 110 KM BORGARNES 30 KM
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjE3NDU=